Fréttir
Geislun frá farsímum og farsímamöstrum
Á undanförnum vikum hefur talsvert veriđ leitađ til Geislavarna ríkisins međ fyrirspurnir um GSM möstur og hugsanleg skađleg heilsufarsáhrif vegna ţeirra. Oftast er ţetta vegna nýrra senda og mastra sem veriđ er ađ setja upp. Sendarnir eru fyrir nýja gerđ af farsímum (3. kynslóđ) sem geta flutt meira magn af upplýsingum en ţarfnast jafnframt fleiri farsímamastra međ styttra á milli sín. Jafnframt eru nýjir ađilar ađ hasla sér völl í rekstri símkerfa.
Stađa rannsókna á áhrifum farsíma og farsímamastra á heilsu manna hefur lítiđ breyst frá ţví ađ hin svokallađa Stewart skýrsla var samin áriđ 2000. Upplýsingar um hana er m.a. ađ finna á vefsíđu Geislavarna ríkisins
Öđru hvoru hafa birst niđurstöđur rannsókna og samantekta á rannsóknum um farsíma og heilsufar. Sjá til dćmis breskar skýrslur um rannsóknir frá 2000-2004 sem eru eins konar viđbćtur viđ Stewart skýrsluna og segir frá í frétt á vefsíđu Geislavarna ţann 12. 01.2005
Ţann 21. september 2004 gáfu norrćn geislavarnayfirvöld frá sér sameiginlega yfirlýsingu um farsíma og heilsufar ţar sem segir ađ engin vísindaleg sönnun hafi fengist fyrir skađlegum heilsufarslegum áhrifum af farsímafjarskiptum, hvorki frá sendistöđvum né frá handtćkjum, sem nota sendistyrk neđan viđmiđunarmarka og grunngilda sem Alţjóđa geislavarnaráđiđ um ójónandi geislun (ICNIRP) hefur mćlt međ.
Eins og fram kemur í frétt um ţessa yfirlýsingu á vefsíđu Geislavarna ţann 21.09.2004, var engu ađ síđur mćlt međ ţví ađ í varúđarskyni vćri dregiđ úr óţarfa geislun, sérstaklega á börn.
Ekkert hefur enn komiđ fram sem breytir fyrri afstöđu Geislavarna ríkisins um geislun frá farsímum og farsímamöstrum en áfram mun stofnunin fylgjast međ niđurstöđum rannsókna á ţessu sviđi.