Fréttir
Fræðsluefni um notkun röntgentækja hjá tannlæknum á vefsetri IAEA
Á Íslandi eru um 370 röntgentæki í notkun hjá um 240 tannlæknum og ætla má að framkvæmdar séu um 300.000 myndatökur á ári með þessum tækjum. Geislun á sjúklinga og starfsmenn vegna hverrar myndatöku er mjög lág, en vegna þess hve notkunin er mikil er mikilvægt að gæta varúðar og halda allri geislun á bæði sjúklinga og starfsmenn eins lágri og frekast er unnt.
Nýlega birtist á vefsetri IAEA nýtt fræðsluefni um geislavarnir í tannlækningum. Vefsetrið hefur það hlutverk að vera upplýsingaveita fyrir fagfólk, almenning og heilbrigðisyfirvöld, þar sem aðgengilegar eru á einum stað margvíslegar upplýsingar um geislun og geislavarnir sjúklinga.
Tengill á vefsetrið: IAEA - Protection of the Patient / Dental Radiology
Fræðsluefnið er sett þannig upp að svarað er ítarlega algengum spurningum (e. frequently asked questions - FAQ) sem upp koma vegna notkunar röntgentækja hjá tannlæknum. Fræðsluefnið skiptist í 3 flokka, geislavarnir sjúklinga (e. patient protection), tannröntgen og barnshafandi konur (e. dental radiology and pregnancy) og geislavarnir starfsfólks og aðstaða (e. staff protection and facility management).
Á vef Geislavarna ríkisins er eftirfarandi efni aðgengilegt sem getur verið áhugavert fyrir þá sem starfa við röntgentæki hjá tannlæknum:
Líffræðileg áhrif jónandi geislunar
Grunnstærðir og mælieiningar
Notkun geislunar í læknisfræði
GR03:03 Skermun á tannlæknastofu
GR03:02 Gæðaeftirlit með röntgenbúnaði á tannlæknastofum
GR94:04 Pósteftirlit - tannröntgentæki 1991 - 1993
Sjá einnig eldri fréttir um sama efni:
25.01.2007 : Ný rit frá IAEA um geislavarnir í læknisfræði
09.10.2006 : Nýtt vefsetur IAEA um geislavarnir sjúklinga
21.02.2006 : Geislaskammtar hjá tannlæknum hafa minnkað