Fréttir
51.ársfundur Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA)
Fundinn sóttu um 1500 fulltrúar þeirra ríkja sem aðild eiga að stofnuninni en þau eru 149. Á fundinum voru samþykktar margvíslegar ályktanir með það að markmiði að styrka starf stofnunarinnar að öryggis og tæknimálum tengdum friðsamlegri hagnýtingu kjarnorku og geislunar. Fundurinn fór vel fram en harðar deilur urðu um kjarnorkumál fyrir botni Miðjarðarhafs og þá sérstaklega að Ísrael sé ekki aðili að alþjóðlegum samningi um bann við útbreiðslu kjarnavopna og hafi jafnvel komið sér upp kjarnavopnum eitt ríkja á sínu heimssvæði.
Frekari upplýsingar um ársfundinn er að finna á hér
Samhliða ársfundinum var haldin fjölmenn vísindaráðstefna með áherslu á þróun kjarnorkunnar og hagnýtingu kjarntækninnar næstu 25 ár. Þar var fluttur fjöldi áhugaverðra erinda, m.a um hagnýtingu kjarntækninnar í landbúnaði og læknisfræði.
Á ráðstefnunni var einnig fjallað um viðbúnað og viðbrögð við kjarn- og geislaslysum. Nokkrar deildir IAEA stóðu fyrir kynningu á starfsemi sinni í tengslum við ársfundinn. Einnig voru mörg aðildarlandanna með kynningar- og sýningarbása þar sem kynnt var ýmislegt tengt hagnýtingu kjarnorku og geislunar.
Samhliða ársfundinum var einnig haldinn árlegur fundur forsvarsmanna geislavarna- og kjarnorkueftirlitsstofnana aðildarlanda IAEA. Á fundinum var m.a. fjallað um áhrif jarðskjálftans í Japan í sumar á kjarnorkuver sem staðsett eru nærri miðju skjálftans og nýleg geislaslys við geislalækningar þar sem sjúklingar hafa orðið fyrir mun meiri geislun en ráðgert var við undirbúning meðferðar.
Í lok ársfundarins voru kjörin 11 ný lönd til setu í stjórn IAEA til tveggja ára. Þau eru: Albanía, Alsír, Equador, Gana, Irak, Irland, Litháen, Mexico, Filipseyjar, Sádi Arabía og Sviss. Sætum í stjórn IAEA er ráðstafað til ríkjahópa eftir ákveðnu skipulagi. Ísland sem tilheyrir svonefndum WEOG - hóp, þ.e. Evrópa, Norður-Ameríka, Ástralía, Nýja Sjáland og Japan, er eitt örfárra aðildarríkja IAEA sem aldrei hefur gefið kost á sér til setu í stjórninni.
52. ársfundur IAEA verður haldinn í Vínarborg 29. september til 3. október 2008.