Fréttir

Ráđstefna um gildistöku Alţjóđasáttmála um bann viđ tilraunum međ kjarnavopn

3.10.2007

Geislavarnir ríkisins hafa um árabil annast rekstur mćlistöđvar fyrir geislavirk efni í andrúmslofti. Stöđin er hluti eftirlitskerfis sem ćtlađ er ađ sannreyna framfylgni viđ alţjóđasáttmála um allsherjarbann viđ tilraunum međ kjarnavopn. Sáttmálinn ţykir einn mikilvćgasti friđarsáttmáli nútímans en Geislavarnir hafa skv. lögum frá 7. maí 2001 eftirlit međ framkvćmd hans á Íslandi.

Dagana 17.-18. september sl. var í Vínarborg haldin fimmta ráđstefnan međ nafninu “Conference on Falicitating the Entry Into Force of the Comprehensive Nuclear-Test-Ban Treaty (CTBT)”. Afdráttarlaus áskorun til ţeirra ríkja sem enn hafa ekki undirritađ eđa fullgilt sáttmálann var samţykkt og má nálgast hana í lokaskýrslu ráđstefnunnar.

Til ţessa hafa 177 ríki undirritađ sáttmálann og 140 fullgilt hann.

Af ţeim 44 ríkjum sem hafa yfir kjarnorku ađ ráđa og stađfesta ţurfa sáttmálann svo hann öđlist gildi hafa nú 34 ríki gert svo. Fulltrúar 7 ţeirra 10 ríkja sem uppá vantar sóttu ráđstefnuna: Kína, Kólumbíu, Egyptalands, Indónesíu, Ísraels, Írans og Pakistans. Norđur-Kórea, Indland og Bandaríkin áttu ekki fulltrúa á ráđstefnunni.

Ađildarríkin létu í ljós áhyggjur yfir ţví ađ 11 árum eftir ađ sáttmálinn var lagđur fram til undirritunar hefur hann enn ekki öđlast gildi. Frá ţví síđasta ráđstefna sama efnis var haldin, áriđ 2005, hefur ţróunin ţó orđiđ sú ađ gildistaka sáttmálans ţykir enn brýnni en fyrr, en á tímabilinu hefur m.a. veriđ framkvćmd kjarnorkusprenging í tilraunaskyni. Var skorađ á öll ríki ađ undirrita og stađfesta sáttmálann án frekari tafa.

Markmiđ ráđstefnunnar var ađ skilgreina leiđir til ađ stuđla ađ gildistöku sáttmálans og eru ţćr tíundađar í 11 liđum í lokaskýrslu ráđstefnunnar. Frekari upplýsingar má nálgast á vefsíđu CTBTO (Preparatory Commission for the Nuclear-Test-Ban Treaty Organisation).

Ísland undirritađi Alţjóđasáttmálann um allsherjarbann viđ tilraunum međ kjarnavopn 24. september 1996 og fullgilti Alţingi hann 26. júní áriđ 2000.