Fréttir
Nýtt vefrit frá ALARA
Í nóvember 2004 var í frétt á vef Geislavarna vakin athygli á vef EAN- ALARA, þar sem sagt er frá starfsemi ALARA netsins
European ALARA Network (http://www.eu-alara.net ) er samstarfsnet hagsmunaaðila sem vinna við eða með jónandi geislun í Evrópu, bæði í læknisfræði, iðnaði og í kjarnorkuiðnaði. Netið var fjármagnað með styrkjum frá þátttökuþjóðum og sjálfsaflafé. Markmið þess er að stuðla að rannsóknum sem snúa að bestun (e. optimisation) í tengslum við geislaálag starfsmanna á öllum sviðum notkunar jónandi geislunar og með dreifingu upplýsinga um bestu vinnubrögð og aðferðir (e. good practices). Reglulega birtast fréttarit á þessum vef sem áhugaverð eru m.t.t. geislavarna.
Í nýjasta ritinu er ýmis fróðleikur og m.a. er þar grein eftir Lars-Erik Holm, forseta Alþjóðageislavarnaráðsins ICRP, , þar sem hann fjallar um nýjar leiðbeiningar ráðsins en þær eru væntanlegar á þessu ári.
Þá er í ritinu grein um björgun geislalindar sem notuð var í iðnaði og lenti í bruna. Einnig er fjallað um geislaslys sem varð við geislalækningu í Þýskalandi og sagt frá rannsókn þess og eftirmálum.
Vefritið má nálgast hér
EAN er rekið af Kjarnorkurannsóknarmiðstöðinni CEPN í Frakklandi.