Fréttir
Fyrirlestur frá Geislavörnum endurtekinn að ósk IAEA
Tilkynningar einstakra ríkja til IAEA (Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar) vegna skilmála í samningnum um takmörkun á útbreiðslu kjarnavopna (NPT) geta verið margvíslegar og þurfa að fylgja ströngu formi. Framkvæmdin hefur vafist fyrir mörgum, m.a. vegna viðbótarbókana sem snerta eftirlit með kjarnkleyfum efnum og búnaði sem nota má í kjarnorkutækni. Með kynningarstarfi og fræðslu leggur IAEA mikla áherslu á að sýna að þetta sé þó vel framkvæmanlegt. Þótti IAEA og þátttakendum á námskeiðinu innlegg Íslands vera þessu markmiði til framdráttar og sýna með skýrum hætti hvernig uppfylla má þessar kröfur, jafnvel með litlu vinnuframlagi. Var þess því farið á leit að fyrirlesturinn yrði endurtekinn á námstefnu um svipað efni í Bandaríkjunum í maí nk.: International Training Course on State Systems of Accounting for and Control of Nuclear Material for States with Small Quantities Protocols.