Fréttir
Ungu fólki er hćttara viđ sortućxlum
Í nýlegri frétt sem birtist á vefsíđu Herald Tribune er sagt ađ ungt fólk, yngra en 35 ára, sé 98% líklegra til ađ fá sortućxli ef ţađ notar ljósabekki.
Ţessi frétt byggir á rannsókn sem er ein af mörgum sem bendir sérstaklega á hćttu vegna geislunar á unga húđ. Fólk um ţrítugt er hér taliđ međ ungu fólki.
Ein vandađasta rannsókn sem gerđ hefur veriđ á sambandi sortućxla og ljósabekkjanotkunar var gerđ á Norđurlöndum og birt áriđ 2003 [1]. Í könnuninni var fylgst međ ljósabekkjanotkun um 100.000 norskra og sćnskra kvenna ađ međaltali í átta ár, en á ţeim tíma komu fram 187 tilvik af sortućxlum hjá ţessum hópi.
Ţessi Norrćna könnun leiddi međal annars í ljós ađ ţćr konur sem notuđu ljósabekki oftar en einu sinni í mánuđi og voru á aldrinum 20-29 ára voru 158% líklegri til ađ fá sortućxli en ţćr konur sem ekki notuđu ljósabekki (Ţessi tala er á milli 48% og 350% međ 95% öryggismörkum sem ţýđir ađ aukin áhćtta er mjög líkleg).
Hér er ekki um óvenju mikla ljósabekkjanotkun ađ rćđa ţar sem ţeir sem á annađ borđ nota ljósabekki gera ţađ ađ jafnađi u.ţ.b. einu sinni í mánuđi, skv. könnunum sem m.a. hafa veriđ gerđar á Íslandi.
Lengi hefur grunur leikiđ á ađ mikil notkun ljósabekkja gćti aukiđ tíđni húđkrabbameina og langt er síđan fariđ var ađ vara fólk međ óvenju ljósa eđa viđkvćma húđ viđ ţví ađ nota ljósabekki. Ţađ er hinsvegar ekki fyrr en nýlega ađ athyglin fór sérstaklega ađ beinast ađ ungu fólki.
Í frćđsluátakinu Hćttan er ljós sem Geislavarnir ríkisins, Krabbameinsfélag Íslands, Landlćknir, Lýđheilsustofnun og Félag húđlćkna hafa stađiđ fyrir árlega frá árinu 2004, er sérstaklega varađ viđ ljósabekkjanotkun fermingarbarna. Ţegar fariđ var af stađ međ ţetta átak var algengt ađ auglýsingum um ljósabekki vćri beint ađ ţessum börnum en slíkt ţekktist varla í öđrum löndum.
Geislavarnastofnanir á Norđurlöndum, ţar á međal Geislavarnir ríksins vöruđu í sameiginlegri yfirlýsingu áriđ 2005 viđ allri ljósabekkjanotkun og sérstaklega viđ notkun fólks yngra en 18 ára og fólks međ viđkvćma húđ.
Tilvísanir:
[1] Veierod, M.B., et al., A prospective study of pigmentation, sun exposure, and risk of cutaneous malignant melanoma in women. J Natl Cancer Inst, 2003. 95(20): p. 1530-8.
Annađ:
Frétt um álit Vísindanefndar Evrópusambandsins um ljósabekki ţar sem m.a. er sagt frá Norrćnu könnuninni
Frétt í Herald Tribune
Frétt um frćđsluátakiđ Hćttan er ljós, áriđ 2008