Fréttir
Ljósabekkjum fćkkar um ţriđjung á ţremur árum
Á landinu öllu eru nú 196 ljósabekkir en ţeir voru 277 í könnun áriđ 2005. Langflestir bekkir á höfuđborgarsvćđinu (um 90%) eru hjá sólbađsstofum en úti á landi eru bekkirnir oftast á stöđum sem selja einnig ađra ţjónustu en sólböđ, til dćmis eru ţeir algengir í heilsurćktarstöđvum og sundlaugum. Miđađ viđ íbúafjölda eru ljósabekkir fleiri á landsbyggđinni en í Reykjavík en á móti kemur ađ gera má ráđ fyrir ađ sólbađsstofur nýti sína bekki betur.
Á landinu öllu eru nú 0,6 bekkir á ţúsund íbúa og eru rúmlega 60% ţeirra hjá sólbađsstofum. Áriđ 2005 voru 0,9 bekkir á ţúsund íbúa og svipađ hlutfall hjá sólbađstofum.
Til samanburđar taldi sćnska geislavarnastofnunin 300 bekki í Gautaborg áriđ 2001 en ţar búa um 470 ţúsund íbúar sem gera um 0,6 bekki á ţúsund íbúa, sem er svipađ hlutfall og nú er á Íslandi. Ađeins 33% ţessara bekkja voru hjá sólbađsstofum.
Samstarfshópur um varnir gegn útfjólublárri geislun var stofnađur í byrjun árs 2004. Núna eru ađilar ađ honum Geislavarnir ríkisins, Landlćknisembćttiđ, Félag ísleneskra húđlćkna, Lýđheilsustöđ og Krabbameinsfélagiđ. Hópurinn hefur á hverju ári stađiđ fyrir átakinu Hćttan er ljós sem beint er gegn ljósabekkjanotkun unglinga og benda kannanir til ađ átakiđ hafi skilađ góđum árangri.
Krabbameinsfélagiđ hefur fyrir hönd hópsins hvatt sveitarfélög til ađ fjarlćgja ljósabekki úr opinberum íţróttamannvirkjum. Á höfuđborgarsvćđinu hafa sveitarfélög fjarlćgt bekki úr sundlaugum enda má segja ađ nćgt frambođ einkaađila sé á slíkri ţjónustu. Sums stađar eru bekkirnir í rekstri einkaađila ţótt ţeir séu í opinberum byggingum og rekstur ţeirra ekki á ábyrgđ sveitarfélaga.
Geislavarnir ríkisins og sams konar stofnanir á Norđurlöndum birtu áriđ 2005 sameiginlega yfirlýsingu ţar sem mćlt var gegn notkun ljósabekkja, sérstaklega međal ungs fólks.
Tilvísanir:
Samnorrćnar ráđleggingar um ljósabekki frá 2005. Common public health advice
Sćnsk könnun á fjölda ljósabekkja í Gautaborg. SSI-report 2003:03