Fréttir

Fundur forstjóra norrænu geislavarnastofnanna

27.5.2008

Fundur forstjóra norrænna geislavarnastofnana var haldinn á Íslandi dagana 15. - 16. maí 2008. Norðurlöndin hafa með sér margþætt samstarf á sviði geislavarna. Á vegum þeirra starfa margir vinnuhópar auk þess sem forstjórar stofnananna funda reglulega. Fundir forstjóranna eru haldnir í löndunum til skiptis.

Norrænu geislavarnastofnaninar hafa um margra áratuga skeið haft með sér margþætt samstarf á sviði geislavarna. Á vegum þeirra starfa margir vinnuhópar sérfræðinga auk þess sem forstjórar stofnananna funda reglulega. Sem dæmi um vinnuhópa stofnananna má nefna hóp sérfræðinga sem fjallar um geislavarnir við notkun jónandi geislunar í læknisfræðilegri myndgreiningu og annan hóp sérfræðinga sem fjallar um viðbúnað við geislaslysum. Samstarfið hefur verið mjög árangursríkt og aukið gagnkvæman skilning og samræmi á fyrirkomulagi og framkvæmd geislavarna á Norðurlöndum. Sameiginleg afstaða stofnananna til ýmissa alþjóðlegra viðfangsefna svo sem til staðla um ljósabekki hefur einnig haft mikil áhrif. Geislavarnir ríkisins taka virkan þátt í þessu samstarfi sem hefur verið mikilvægt fyrir þróun geislavarna á Íslandi.

Á fundi norrænu forstjóranna í Reykjavík 15. - 16. maí s.l., var fjallað um fjölda samstarfsverkefna og skýrslur vinnuhópa um árangur liðins árs. Jafnframt var ákveðið að auka norrænt samstarf á sviði ójónandi geislunar og munu Norðmenn leiða það samstarf. Af öðrum málum sem fjallað var um má nefna danska skýrslu um viðamikla úttekt og samanburð á viðbúnaði í Danmörku og nokkrum öðrum löndum Evrópu vegna geislaslysa. Einnig var fjallað um sameiningu Geislavarnastofnunar (www.ssi.se) og Kjarneftirlits Svíþjóðar (www.ski.se), en Geislaöryggisstofnun Svíþjóðar sem annast mun bæði geislavarnir og kjarneftirlit, tekur til starfa 1. júlí 2008. Báðar þessar stofnanir sem nú verða sameinaðar eru rótgrónar og njóta virðingar bæði innan Norðurlandanna sem utan.

Næsti fundur forstjóranna verður haldinn í Noregi í júní 2009.

SMM

Tenglar á Geislavarnastofnanir á Norðurlöndunum

Noregi

Finnlandi

Danmörk

Svíþjóð