Fréttir

Forstjórar Evrópskra geislavarnastofnana funduðu í Frakklandi 19. maí.

18.6.2008

Evrópskar geislavarnastofnanir eru að þróa með sér ákveðið samstarf. Á vegum þeirra starfa nú nokkrir starfshópar og einnig hafa forstjórar þeirra fundað tvívegis. Síðasti fundur þeirra var haldinn í París 19. maí.

Að frumkvæði forstjóra Geislavarna- og kjarnöryggisstofnunar Frakklands eru evrópskar geislavarnastofnanir að þróa með sér ákveðið samstarf. Þannig héldu forstjórar Evrópskra geislavarnastofnana annan fund sinn í París þann 19. maí s.l. Fundurinn var fjölsóttur og tóku forstjórar mjög margra evrópskra geislavarnastofnana þátt í honum. Fundunum er ætlað að vera samráðsvettvangur forstjóranna og eru vonir bundnar við að þeir leiði til gagnkvæms skilnings og samræmingar á framkvæmd geislavarna í Evrópu.

Helsta viðfangsefni fundarins var að ræða skýrslur 5 vinnuhópa sem settir voru á laggirnar á 1. fundi forstjóranna sem haldinn var fyrir ári síðan. Gert er ráð fyrir að þeir ljúki störfum fyrir áramót. Einn vinnuhópur fjallar um geislavarnir við nýjar geislunaraðferðir í læknisfræði. Hlutverk vinnuhópsins er að koma með tillögur um samræmingu á mati á geislavörnum við nýjar geislunaraðferðir í læknisfræði hvort sem um er að ræða sjúkdómsgreiningu eða meðferð. Annar vinnuhópur fjallar um samræmingu viðbragða við geislavá. Hlutverk hans er að koma með tillögur um með hvaða hætti hægt sé að samræma viðbrögð við geislavá í Evrópu.

Næsti fundur forstjóranna er fyrirhugaður í desember 2008. Helsta verkefni hans verður að leggja mat á lokaskýrslur starfshópanna sem nú eru að störfum.

18.6.2008 SMM