Fréttir

Vefsetur IAEA um geislavarnir sjúklinga, nýtt efni

26.9.2008

Stöðugt birtast nýjar upplýsingar á þessu vefsetri Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA), ásamt því að eldra fræðsluefni er uppfært. Þetta er áhugavert vefsetur fyrir þá sem vinna við jónandi geislun í læknisfræði.

Vefsetur IAEA um geislavarnir sjúklinga hefur það hlutverk að vera upplýsingaveita fyrir fagfólk, almenning og heilbrigðisyfirvöld, þar sem aðgengilegar eru á einum stað margvíslegar upplýsingar um geislun og geislavarnir sjúklinga. Nýlega voru upplýsingar á vefsetrinu uppfærðar þar á meðal er eftirfarandi:

  1. Hægt er að nálgast nýtt fræðsluefni um geislavarnir vegna notkunar PET/CT

  1. Birtar eru upplýsingar um skoðun sem er í gangi á augum hjartalækna sem vinna með röntgentæki, til þess að greina gláku á byrjunarstigi: hér

 

  1. Birtar eru upplýsingar um fræðslu fyrir lækna sem nota skyggnibúnað : hér

 


Meginsíða vefsetursins er hér


GE