Fréttir

Nýtt rit frá Alþjóðageislavarnaráðinu - Geislavarnir í læknisfræði

29.9.2008

Nýlega kom út hjá Elsevier nýtt rit frá Alþjóðageislavarnaráðinu eða rit númer 105 (ICRP Publication 105) sem ber heitið "Radiation Protection in Medicine" eða geislavarnir í læknisfræði og var það samþykkt til útgáfu í október 2007.

Samkvæmt ritstjórnarpistli ritsins var það tekið saman á sínum tíma til þess að styðja við nýjar meginleiðbeiningar ráðsins sem komu út fyrir stuttu, þ.e. rit nr. 103 (sjá frétt 26. mars 2007). Í þessu riti er fjallað um það hvernig skuli beita grunnráðleggingum ráðsins (réttlætingu, bestun og takmörkun geislunar) vegna geislunar á sjúklinga, geislunar á aðhlynnendur þeirra (Caregivers), sjálfboðaliða og þátttakendur í vísindarannsóknum þar sem notuð er jónandi geislun.

Þetta rit sérstaklega ætlað þeim sem koma að læknisfræðilegri notkun jónandi geislunar og vilja nákvæmar upplýsingar um þær geislavarnir sem við eiga og á hverju þær byggjast. Meginskilaboð ritsins eru að geislavarnir vegna læknisfræðilegrar geislunar sjúklinga eru í mörgu mjög frábrugðnar öðrum tegundum geislavarna. Takmörkun geislaálags á ekki við svo framarlega sem ávinningur sjúklings er meiri en áhætta. Að þessu uppfylltu er jónandi geislun í viðeigandi magni sem beitt er í ákveðnum læknisfræðilegum tilgangi ómissandi verkfæri.

Ritið er hægt að nálgast ókeypis á rafrænu formi á þessari slóð


Sjá einnig eldri ICRP fréttir :

7.11.2007 : Nýtt leiðbeiningarit um geislavarnir við notkun fjölsneiða tölvusneiðmyndatækja.

24.07.2007 Áhrif nýrra grunnleiðbeininga Alþjóða Geislavarnaráðsins


GE