Fréttir

Náttúruleg geislun jókst á meðan Ike fór yfir Ísland

8.10.2008

Skömmu eftir miðnætti 16. til 17. september mátti merkja á mælum Geislavarna ríkisins aukningu styrks náttúrulegrar geislunar í Reykjavík. Um þetta leyti fóru leifar fellibyljarins Ike yfir Ísland og fylgdi hellirigning. Styrkur náttúrulegrar geislunar eykst oft samfara miklum rigningum og þetta mátti t.d. einnig sjá við Höfn í Hornafirði aðfaranótt 7. október.

Náttúruleg geislun stafar að mestu frá berggrunni og jarðvegi. Íslenska basaltið er mjög snautt af geislavirkum efnum og náttúruleg geislun er því lítil á Íslandi. Rigning getur skolað skammlífum geislavirkum efnum til jarðar, bæði efnum frá jarðvegi og einnig efnum sem myndast í háloftum vegna geimgeisla.  Þótt hér sé um afskaplega lítið magn efna að ræða (þau skipta engu í heilsufarslegu tilliti) þá eru þau mælanleg með næmum geislamælum. 

Skömmu eftir miðnætti 16. - 17. september mátti sjá slíka aukningu á mæli Geislavarna ríkisins í Reykjavík, sbr. mynd hér að neðan. Geislunin fór upp  í 70  nSv/klst en er venjulega um 50 nSv/klst.

geislun-regn-001

Myndin að neðan yfir uppsafnaða úrkomu sýnir að um sama leyti var hellidemba í Reykjavík (rúmlega 30 mm).

geislun-regn-002Í desember á síðasta ári mátti sjá enn skýrari dæmi um þetta: Þá sýndi geislamælistöð Geislavarna í Reykjavík um 80 nSv/klst sbr. meðfylgjandi:

geislun-regn-003

Myndin að neðan sýnir að þá var líka um 30 mm úrkoma eins og aðfaranótt 17. september.

geislun-regn-004

 

 

Svipuð vensl geislunarstyrks og regns mátti einnig sjá í þessari viku (aðfaranótt 7. október) við Höfn í Hornafirði.  Sjá línurit yfir styrk geislunar:

gamma_regn_5og uppsafnaða úrkomu:

gamma_regn_6Jafnan er hægt að fylgjast með mælingum Geislavarna á styrk geislunar á fjórum stöðum á landinu með því að fara á vefsíðu Geislavarna ríksins.

http://www.gr.is/gammastodvar/

Þar eru birt línurit yfir geislun einn sólarhring og eina viku aftur í tímann fyrir hvern stað.  Jafnframt er þar að finna samsvarandi línurit yfir uppsafnaða úrkomu.  Þessi gögn eru tekin saman í samvinnu við Veðurstofu Íslands.