Fréttir
Nýtt vefrit frá ALARA - September 2008
European ALARA Network (http://www.eu-alara.net ) er samstarfsnet hagsmunaaðila sem vinna við eða með jónandi geislun í Evrópu, bæði í læknisfræði, iðnaði og í kjarnorkuiðnaði. Netið er fjármagnað með styrkjum frá þátttökuþjóðum og sjálfsaflafé. Markmið þess er að stuðla að rannsóknum sem snúa að bestun (e. optimisation) í tengslum við geislaálag starfsmanna á öllum sviðum notkunar jónandi geislunar og með dreifingu upplýsinga um bestu vinnubrögð og aðferðir (e. good practices). Reglulega birtast fréttarit með áhugaverðu efni m.t.t. geislavarna.
Í þessu nýja riti er ýmis fróðleikur, m.a. niðurstöður og leiðbeiningar frá EAN-vinnubúðum þar sem fjallað var um geislavirkan úrgang. Þá er grein um framkvæmd evróputilskipunar um hágeislavirkar lindir (HASS) á Ítalíu, grein um geislaálag sjúklinga vegna notkunar tannröntgentækja í Bretlandi og sagt frá atviki á Ítalíu vegna geislamengunar í stálplötum. Fleira efni er í ritinu en það má nálgast hér
EAN er rekið af Kjarnorkurannsóknarmiðstöðinni CEPN í Frakklandi.
GE