Fréttir
Geislavirk efni í munaðarlausum tækjum - möguleg vá
Allar geislavarnastofnanir krefjast þess af leyfishöfum að þeir sinni ætíð öryggisskyldum sínum. Við breytingar í rekstri fyrirtækja er þó hætt við að tæki með geislavirkum efnum séu tekin úr notkun og að vitundin um uppbyggingu tækisins og öryggiskröfur vegna þeirra dvíni, t.d. í kjölfar mannaskipta. Sérstaklega er hætt við þessu ef fyrirtæki hættir skyndilega starfsemi sinni, t.d. vegna gjaldþrots. Við slíkar aðstæður er einnig hætt við að þessi tæki verði munaðarlaus og hafni jafnvel í brotajárni. Slíkt hefur ekki gerst hérlendis svo vitað sé, en tæki með geislavirkum efnum hafa orðið eftir í gjaldþrota fyrirtækjum og við mannaskipti hefur það komið fyrir að þekking á uppbyggingu tækis og öryggisatriðum hafi ekki verið miðlað með fullnægjandi hætti.
Jafnvel þótt heilsufarslegar afleiðingar verði takmarkaðar, þá getur það haft mjög alvarlegar efnahagslegar afleiðingar í för með sér ef tæki með geislavirkt efni fer í málmbræðslu. Slík tilvik hafa komið upp erlendis og nú í haust hefur verið umfjöllun í fjölmiðlum um atvik þar sem geislavirk efni barst í málmbræðslu í Indlandi og þaðan í iðnvarning í Evrópu. Það tókst fljótt að greina vandann og rekja hann til uppruna síns, þannig að iðnvarningur mengaður geislavirkum efnum komst ekki í umferð. Slíkt væri ekki líklegt til að hafa nein merkjanleg heilsufarsleg áhrif, en mælitæknin við að finna geislavirk efni er svo næm að slíkur iðnvarningur væri í flestum tilvikum óseljanlegur. Krafa um efnahagslegar skaðabætur gæti því orðið mjög há.
Það er því mikilvægt að allir haldi vöku sinni sem koma með einhverjum hætti að umsýslu geislavirkra efna hérlendis og tækja sem innihalda geislavirk efni, slík efni og tæki mega aldrei verða munaðarlaus.