Fréttir
Geislavarnir ríkisins hafa fengið vottað gæðakerfi
Geislavarnir ríkisins sinna ýmsum verkefnum sem krefjast þess að þau séu unnin með samræmdum hætti, skilvirklega, rekjanlega og geti sætt endurskoðun ef þurfa þykir. Þetta gerir einnig kröfu um trausta skjalfestingu. Stofnunin hefur því innleitt vottað gæðakerfi til að bæta og styrkja starfsemina.
Kerfið tekur til allra þátta í starfsemi stofnunarinnar sem lýst er með verklagsreglum og vinnulýsingum ásamt leiðbeiningum og eyðublöðum. Sett hafa verið fram skýr og mælanleg markmið sem fylgt er eftir. Geislavarnir nota til þess aðferðafræði stefnumiðaðs árangursmats (BSC, Balanced Scorecard).
Til að þróa gæðakerfið og jafnframt bæta starfsemi stofnunarinnar eru ábendingar um það sem betur má fara, teknar fyrir og afgreiddar formlega. Allir viðskiptavinir Geislavarna geta komið ábendingum til skila á vef stofnunarinnar: www.geislavarnir.is/abending/
Geislavarnir stefna að faggildingu á ákveðnum þáttum starfseminnar, þar á meðal eru aðferðir sem stofnunin notar við greiningu á geislavirkni og kvörðun. Með faggildingu fæst alþjóðleg staðfesting á hæfni Geislavarna við beitingu þessara aðferða.
Geislavörnum ríkisins er mikilvægt að njóta óskoraðs trausts bæði innan lands og utan og vottað gæðakerfi stuðlar að því.
British Standard Institute, BSI er stærsti vottunaraðili í heiminum með meira en 40.000 viðskiptavini.
Tengill á rafrænt vottunarskýrteini (pdf)