Fréttir

Sól, D-vítamín, krabbamein - óbreytt ráðgjöf

17.12.2008

Alþjóðakrabbameinsstofnunin, IARC, telur að svo stöddu ekki skynsamlegt að auka ráðlagða dagskammta af D-vítamíni eða hvetja fólk til þess að taka stóra skammta (þ.e. meiri en 25 míkrógrömm á dag í langan tíma) þrátt fyrir að niðurstöður ýmissa rannsókna bendi til þess að há gildi af D-vítamíni í blóði auki lífslíkur og minnki að minnsta kosti áhætta sumra krabbameina.

Umræða um hugsanlegt hlutverk D-vítamíns við að fyrirbyggja krabbamein hefur aukist undanfarin ár. Spurningar hafa vaknað um hvort tilefni sé til að breyta opinberri ráðgjöf, meðal annars um ráðlagða dagskammta D-vítamíns og um skaðsemi ljósabaða. Í nýrri skýrslu frá Alþjóðakrabbameinsstofnuninni (International Agency for Research on Cancer) eru teknar saman upplýsingar um þær vísindarannsóknir sem hafa birst og dregnar af þeim ályktanir.

Eins og búast mátti við eru niðurstöður IARC ekki afgerandi. Ljóst þykir að fólk með mikið D-vítamín í blóði lifir lengur en þeir sem mælast með lítið D-vítamín en það þýðir ekki endilega að vítamínið sé orsök langlífis. Hraust fólk hreyfir sig mikið og stundar útveru og er þess vegna bæði líklegt til að vera með mikið D-vítamín og lifa lengur en aðrir.

IARC telur að faraldsfræðilegar rannsóknir sýni að tengsl séu á milli krabbameins í endaþarmi og skorts á D-vítamíni og einnig séu veik tengsl við brjóstakrabbamein en ekki hafi tekist að sýna fram á nein tengsl við krabba í blöðruhálskyrtli.

IARC telur einnig, að niðurstöður tilrauna sýni að með því að auka D-vítamín hjá fólki gæti dregið úr dánarlíkum þótt ekki sé ljóst hvers vegna. IARC telur engu að síður ekki skynsamlegt að auka ráðlagða dagskammta af D-vítamíni eða hvetja fólk til að taka stóra skammta.

Rökin eru þau að enn sem komið er hafa fáar rannsóknir verið gerðar á áhrifum stórra skammta af D-vítamíni (þ.e. umfram 25 míkrógrömm, eða 1000 alþjóðaeiningar á dag í langan tíma) á aðra heilsuþætt en beinheilsu og kalkbúskap. Margt bendir til að þess að bæði lág gildi og mjög há gildi D-vítamíns í blóði getið aukið áhættu krabbameins og skaðað helsi, rétt eins og fram hefur komið með ýmis andoxunarefni. - IARC hvetur til aukinna rannsókna á þessu sviði.

Meðal rannsókna sem vitnað er til í greinargerð IARC, er rannsókn Laufeyjar Steingrímsdóttur o.fl. á kalkbúskap Íslendinga frá 2005 en hún leiddi í ljós að það skiptir meira máli fyrir kalkbúskap líkamans að fá nægilegt magn af D-vítamíni heldur en að auka kalkskammtinn umfram ráðlagðan dagskammt.

ÞS