Fréttir

Breytingar á lögum um geislavarnir

5.1.2009

Um áramótin tóku gildi breytingar á lögum um geislavarnir sem samţykktar voru á Alţingi voriđ 2008. Međ breytingunum er eftirlit stofnunarinnar einföldađ og dregiđ úr reglubundnu tćknilegu eftirliti. Ţess í stađ er nú lögđ áhersla á ábyrgđ notenda,virk gćđakerfi og mat á geislaálagi sjúklinga.

Lög um geislavarnir nr. 44/2002 tóku gildi 1. maí 2002. Í 23. gr. er kveđiđ á um endurskođun á eftirlitsţćtti laganna innan 5 ára frá gildistöku ţeirra. Heilbrigđisráđherra mćlti fyrir frumvarpi til breytinga á lögunum ţann 5. febrúar 2008. Samkvćmt ţví er eftirlit stofnunarinnar einföldađ og dregiđ úr reglubundnu tćknilegu eftirliti. Ţess í stađ er nú lögđ áhersla á ábyrgđ notenda, virk gćđakerfi notenda og mat á geislaálagi sjúklinga. Breyttum áherslum í starfsemi Geislavarna er ćtlađ ađ stuđla ađ ţví ađ notkun geislunar á Íslandi sé sem árangursríkust og geislun á fólk sé sem minnst, hvort sem um er ađ rćđa almenning, starfsfólk eđa sjúklinga.

Frumvarpiđ var samţykkt sem lög frá Alţingi ţann 7. Apríl 2008, lög nr. 28/2008 um breytingu á lögum nr. 44/2002 um geislavarnir (pdf) og tóku ţau gildi 1. Janúar 2009.

Breytingarnar sem lög nr. 28/2008 fela í sér eru fjórţćttar:

  • Í fyrsta lagi er framkvćmd eftirlits međ innflutningi, uppsetningu og breytingu á geislatćkjum sem gefa frá sér jónandi geislun einfölduđ.
  • Í öđru lagi er útflutningur geislavirkra efna háđur leyfi Geislavarna ríkisins og verđi leyfi ţví ađeins veitt ađ stjórnvald í móttökulandinu stađfesti ađ móttakandi efnisins hafi leyfi til móttöku geislavirkra efna.
  • Í ţriđja lagi er Geislavörnum ríkisins falin nauđsynleg mćlifrćđi og umsjón međ og varđveisla landsmćligrunna fyrir jónandi geislun og geislavirkni. Međ mćlifrćđi jónandi geislunar er átt viđ frćđi og ađferđir til ađ mćla geislun, geislaskammta og geislavirkni en međ landsmćligrunni er átt viđ mćlitćki eđa mćlikerfi sem ćtlađ er ađ skilgreina eđa endurgera mćlieiningu sem höfđ er til viđmiđunar í landinu.
  • Í fjórđa lagi er orđalag nokkurra greina laga nr. 44/2002 gert skýrara.

Unniđ er ađ breytingum á reglugerđum um geislavarnir vegna notkunar geislavirkra efna og geislatćkja međ sömu markmiđ í huga og viđ lagabreytingarnar.

SMM