Fréttir

Vopnaleit með röntgenmyndum á flugvöllum

12.1.2009

Skannar á flugvöllum sem geta sýnt vopn innanklæða hjá fólki nota væga röntgengeislun en ekki hljóðbylgjur eins og haldið var fram í einni frétt. Þeir hafa ekki verið teknir í notkun á Íslandi.

Á flugvöllum um allan heim, þar á meðal á Íslandi, eru vopnaleitarhlið sem skynja ef málmhlutur fer í gegn um þau. Slík hlið nota rafsegulsvið en ekki röntgengeislun. Nýlega hafa hinsvegar verið þróuð tæki, eins konar skannar sem geta birt myndir af því sem fólk ber innanklæða. Þessir skannar nota væga röntgengeislun en ekki hljóðbylgjur eins og ranglega kom fram í grein í DV 5. janúar 2009.

Öll geislun, hversu lítil sem hún er hefur í för með sér aukna áhættu enda þótt aukningin geti verið mjög lítil. Erlendis hefur andstaðan við þessi tæki ekki verið vegna óþarfa röntgengeislunar á fólk heldur vegna þess að myndir sem þau birta hafa þótt særa blygðunarkennd margra, þar sem myndirnar líkjast nektarmyndum.

Til notkunar allra röntgentækja þarf leyfi frá Geislavörnum ríkisins og notkun þeirra er háð reglubundnu eftirliti. Innflytjendum öryggiskerfa er þetta vel kunnugt þar sem þessar reglur gilda um farangursleitartæki á flugvöllum sem nota röntgengeislun.

Þegar um nýja notkun röntgengeislunar er að ræða, þarf að vera hægt að réttlæta gagnsemi hennar umfram áhættu og enn hefur slíkt mat ekki verið lagt á þessi tæki hér, enda hefur þess ekki verið óskað.

EDO-x-ray

Grein í DV:

http://www.dv.is/frettir/2009/1/5/skanni-aflaedir-flugfarthega/

Dæmi um umræðu um þessi tæki er meðfylgjandi grein um að þýsk stjórnvöld hyggist ekki leyfa umrædda skanna þrátt fyrir vilja EBE.

http://www.thelocal.de/sci-tech/20081024-15107.html