Fréttir

Nýtt rit frá ICRP um geislaskammta í kjarnlæknisfræði

19.1.2009

Nýlega kom út hjá Elsevier nýtt rit frá Alþjóðageislavarnaráðinu, númer 106 (ICRP Publication 106) sem ber heitið Radiation Dose to Patients from Radiopharmaceuticals. Þetta rit er viðbót og leiðrétting við eldri rit ráðsins um sama efni.

Fyrsta ritið sem fjallaði um geislaskammta vegna þeirra geislavirku efna sem notið eru í rjarnlæknisfræði, kom út hjá ráðinu árið 1972 (Publication 17) og miðaðist við þau efni sem þá voru notuð á þessu sviði. Með riti nr. 53 Radiation Dose to Patients from Radiopharmaceuticals (1987) voru gefnar upplýsingar um mat á geislaskömmtum, hlutgeislaálagi og geislaálagi vegna þeirra efna sem helst voru í notkun á þeim tíma. Síðar hafa verið gefin út viðbótarrit með leiðréttingum og upplýsingum um ný efni sem ástæða hefur þótt að veita upplýsingar um. Tvær fyrstu viðbæturnar er að finna í ritum nr. 62 (1991) og nr. 80 (1998).

ICRP rit 106 er þriðja viðbótarritið við rit nr. 53. Í þessu nýja riti er fjallað um flest þau efni sem notuð eru nú í kjarnlæknisfræðinni, og gefur það upplýsingar um það hvernig meta skuli geislaskammta og geislaálag sjúklinga út frá styrk þess efnis sem gefið er. Þá eru í ritinu leiðbeiningar um geislavarnir ungbarna sem eru á brjósti og leiðbeiningar fyrir starfsmenn vegna geislunar á hendur við vinnu með geislavirk efni.


Ritið er hægt að nálgast ókeypis á rafrænu formi á þessari slóð

Sjá eldri fréttir um ICRP á vefsíðu GR

29.09.2008 : Nýtt rit frá Alþjóðageislavarnaráðinu - Geislavarnir í læknisfræði

07.11.2007 : Nýtt leiðbeiningarit um geislavarnir við notkun fjölsneiða tölvusneiðmyndatækja.

24.07.2007 : Áhrif nýrra grunnleiðbeininga Alþjóða Geislavarnaráðsins

 

 

GE