Fréttir
Góđur árangur í alţjóđlegum samanburđi rannsóknastofa
Geislavarnir ríkisins tóku gammagreiningu í notkun á rannsóknastofu sinni sumariđ 1989. Ţá var nauđsynlegt ađ geta metiđ styrk geislavirks úrfellis í íslenskum matvćlum, m.a. vegna útflutnings. Sjónir beindust einkum ađ einni kjarntegund, sesín-137, ţví ţađ var magn hennar sem gat haft takmarkandi áhrif á matvćlaframleiđslu í ýmsum ríkjum Evrópu í kjölfar slyssins í Tjernóbýl 1986. Áhrif slyssins hér á landi voru hverfandi lítil, en ţađ ţurfti engu ađ síđur ađ sýna fram á ţađ međ mćlingum og Geislavarnir ríkisins hafa haldiđ áfram vöktun á styrk sesíns í umhverfi og meginmatvćlum framleiddum hérlendis.
Á síđari árum hefur orđiđ sú ţróun alţjóđlega ađ leggja ć meiri áherslu á viđbúnađ og ađ rannsóknastofur geti glímt viđ ađ ţekkja sér óţekktar kjartegundir í sýnum og meta magn ţeirra. Geislavarnir ríkisins eru ţví ađ leggja meiri áherslu á ţennan ţátt, ađ geta greint sýni af óţekktri gerđ međ sem mestri nákvćmni. Ţótt gammarófsmćling hvíli frćđilega á einföldum og traustum grunni, ţá geta leynst ýmsar gildrur ţegar meta á magn óţekktra efna. Mismunandi geislar geta runniđ saman í skynjaranum og eitt efni getur veriđ ađ umbreytast vegna geislavirkni í annađ efni (jafnvel međan á mćlingu stendur). Til ţessa og ýmissa annarra ţátta verđur ađ taka tillit ţegar niđurstöđur mćlinga eru túlkađar.
Til ţessa hafa Geislavarnir einkum notađ eigin hugbúnađ viđ túlkun mćlinga á geislavirku sesíni og samkvćmt niđurstöđu samanburđarmćlinga á fyrri árum, ţá hefur ţađ gefiđ góđa raun. Til ađ glíma viđ óţekkt efni ţarf hins vegar ađra ađferđ viđ túlkun og tók stofnunin ţví ţátt í alţjóđlegri samanburđarprófun NPL síđast liđiđ haust til ađ kanna hversu vel hefđi miđađ. Međal ţátttakenda voru helstu rannsóknastofur Evrópu á ţessu sviđi. Niđurstöđur voru kynntar í síđustu viku og af 78 rannsóknastofum sem tóku ţátt, ţá voru Geislavarnir ríkisins í hópi 12 bestu, ţeirra sem greindu öll efni rétt.