Fréttir
Vefsetur IAEA um geislavarnir sjúklinga, nýtt efni og nýtt útlit
Vefsetrið hefur það hlutverk að vera upplýsingaveita fyrir fagfólk, almenning og heilbrigðisyfirvöld, þar sem aðgengilegar eru á einum stað margvíslegar upplýsingar um geislun og geislavarnir sjúklinga.
Nýlega var vefurinn uppfærður með nýtt útlit og annarri röðun efnis. Þá var einnig bætt við nýjum efnisflokki sem er kallaður "Did you know that .." þar sem settar eru fram áhugaverðar upplýsingar um tiltekin málefni.
Þá kemur einnig fram á vefnum að stefnt er að því að auka og bæta upplýsingar fyrir sjúklinga en hingað til hefur aðaláherslan verið efni fyrir fagfólk.
Auk þess voru aðrar upplýsingar á vefsetrinu uppfærðar, þar sem m.a. er sagt frá nýjum útgáfum sem snúa að geislavörnum vegna nýrra myndgerðartækni s.s. PET/CT, Cardiac CT og CT colonography og hægt er nálgast ókeypis.
Þá eru einnig birtar upplýsingar um áhugaverðar nýjar greinar úr ritrýndum tímaritum.
Meginsíða vefsetursins er hér
GE