Fréttir
Ný skýrsla: Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2007
Í skýrslunni eru teknar saman vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins á geislavirku sesíni (Cs-137) í umhverfinu og í matvælum árið 2007. Sesín-137 var mælt í andrúmslofti (svifryki), úrkomu, kúamjólk (ferskri mjólk og mjólkurdufti), lambakjöti, sjó, þangi og fiski. Niðurstöður mælinga benda til að um litlar breytingar sé að ræða á styrk sesíns síðustu árin.
Í andrúmslofti er styrkur sesíns < 3 μBq/m3 og í úrkomu < 1 mBq/l. Í mjólk mælist styrkur sesíns að jafnaði um 1 Bq/kg og í mjólkurdufti 7 - 12 Bq/kg. Styrkur sesíns í lambakjöti er jafnan mjög breytilegur milli sýna og spannar árið 2007 1 - 50 Bq/kg. Þessi breytileiki endurspeglar fjölbreytt fæðuval lamba að sumarlagi. Í sjó mælist styrkur sesíns 2,2 - 2,9 Bq/m3. Hæstur styrkur mælist jafnan í pólsjó fyrir norðan og vestan land. Styrkur Tc-99 (teknetín-99) í sjó mælist 0,07 - 0,11 Bq/m3. Í þangi mælist styrkur sesíns á bilinu 0,05-0,25 Bq/kg, í þorski undir 0,3 Bq/kg ferskvigt og í ýsu um 0,08 Bq/kg ferskvigt.
Ofangreind gildi eru svipuð gildum undanfarinna ára, þó almennt ögn lægri. Styrkur sesíns í íslenskum matvælum er í öllum tilvikum langt neðan þeirra alþjóðlegu viðmiðunarmarka sem miðað er við í milliríkjaverslun, 1000 Bq/kg.
Styrkur gammageislunar er mældur stöðugt við fjórar sjálfvirkar veðurstöðvar Veðurstofu Íslands, þ.e. á Bolungarvík, Raufarhöfn, Hornafirði og í Reykjavík. Styrkur geislunar er almennt lágur, eða 40-80 nSv/klst.
KG