Fréttir

Geislavörnum bođin ţátttaka í starfi Alţjóđa Geislavarnaráđsins

24.3.2009

Forstjóra Geislavarna ríkisins hefur veriđ bođiđ ađ taka sćti í einni af fimm fastanefndum Alţjóđa geislavarnaráđsins á tímabilinu 2009 - 2013.

Alţjóđa geislavarnaráđiđ (International Commission on Radiological Protection, ICRP) var stofnađ áriđ 1928. Leiđbeiningar ţess um geislavarnir ásamt mati Vísindanefndar Sameinuđu ţjóđanna á áhrifum jónandi geislunar er sá grunnur sem öryggisstađlar í geislavörnum byggja á. Ţađ á jafnt viđ um öryggisstađla sem alţjóđastofnanir eins og Alţjóđa kjarnorkumálastofnunin setja og öryggisstađla sem einstök ríki eđa ríkjabandalög eins og Evrópusambandiđ setja.

Auk yfirnefndar Alţjóđa geislavarnaráđsins ţá starfa á vegum ţess 5 fastanefndir sem fjalla um afmörkuđ sviđ geislavarna ţ.e. áhrif geislunar, mat á geislaskömmtun, geislavarnir í lćknisfrćđi, notkun leiđbeininga ráđsins og geislavarnir umhverfisins (dýr og plöntur). Í hverri nefnd eiga sćti 15 sérfrćđingar á starfssviđi viđkomandi nefndar. Í yfirnefnd ICRP eiga sćti, auk formanns, 5 formenn fastanefnda og 7 einstaklingar međ yfirgripsmikla og víđtćka ţekkingu á starfssviđi ICRP.

Yfirnefnd ICRP fyrir tímabiliđ 2009 - 2013 var kjörin í október 2008 af sitjandi yfirnefnd og tekur hún til starfa um mitt ár 2009. Nú er veriđ skipa í fastanefndir ráđsins fyrir tímabiliđ 2009 - 2013.

Sigurđi M Magnússyni, forstjóra Geislavarna ríkisins, veriđ bođiđ ađ taka sćti í 4. nefnd ICRP og verđur hann eini norrćni fulltrúinn í nefndinni. Hlutverk hennar er ađ veita ráđgjöf um notkun leiđbeininga ráđsins hvađ varđar geislun almennings og starfsmanna. Nefndin er einnig tengiliđur ráđsins viđ ađrar alţjóđastofnanir og starfsgreinafélög sem koma ađ geislavörnum. Helsta verkefni nefndarinnar nćstu ár verđur ađ veita hagnýta ráđgjöf og leiđbeiningar um notkun grunnleiđbeininga ICRP sem gefnar voru út í lok árs 2007 einkum hvađ varđar viđbúnađ og náttúrulega geislun.

Nánari upplýsingar um Alţjóđa geislavarnaráđiđ má finna á heimasíđu ţess, www.icrp.org.

 

SMM