Fréttir
Nýtt fréttarit frá EAN-ALARA
European ALARA Network (http://www.eu-alara.net ) er samstarfsnet hagsmunaaðila sem vinna við eða með jónandi geislun í Evrópu, bæði í læknisfræði, iðnaði og í kjarnorkuiðnaði. Netið er fjármagnað með styrkjum frá þátttökuþjóðum og sjálfsaflafé. Markmið þess er að stuðla að rannsóknum sem snúa að bestun (e. optimisation) í tengslum við geislaálag starfsmanna á öllum sviðum notkunar jónandi geislunar og með dreifingu upplýsinga um bestu vinnubrögð og aðferðir (e. best practices). Reglulega birtast fréttarit með áhugaverðu efni m.t.t. geislavarna.
Í þessu nýja riti eru m.a. eftirfarandi greinar:
-
Um geislun á hendur geislafræðinga í kjarnlæknisfræði (ísótóparannsóknir) sem vinna við með geislavirka efnið 18-F-FDG í PET rannsóknum.
-
Niðurstöður og leiðbeiningar frá vinnufundum (workshop) þar sem fjallað var betrumbætur á geislavörnum vegna notkunar jónandi geislunar í iðnaðarmyndgreiningu (Industrial Radiography).
-
Niðurstöður og leiðbeiningar frá vinnufundum þar sem fjallað var um notkun geislalinda í iðnaði.
- Sagt frá niðurstöðum verkefnisins "European ALARA Network for Naturally Occurring Radioactive Material - NORM".
- Þá er í ritinu grein um atvik sem átti sér stað í Tékklandi við geislameðferðar vegna brjóstakrabbameins.
Fleira efni er í ritinu en það má nálgast hér
EAN er rekið af Kjarnorkurannsóknarmiðstöðinni CEPN í Frakklandi.
GE
Eldri féttir um sama efni:
17.10.2008 (361)
11.10.2007 (321)
10.4.2007 (295)