Fréttir
Nýtt efni á vefsetri IAEA um geislavarnir sjúklinga
Áđur hefur veriđ sagt frá fróđlegu vefsetri Alţjóđakjarnorkumála-stofnunarinnar, IAEA, um geislavarnir sjúklinga (sjá tilvísun neđst á ţessari vefsíđu).
Ţar er m.a. ađ finna tilvísun í nýlega grein í apríl-hefti Radiology, ţar sem fjallađ er um niđurstöđur rannsóknar sem framkvćmd var á lćknamiđstöđ í Bandaríkjunum. Ţar kemur fram ađ 33% sjúklinga sem sótti ţessa miđstöđ hafđi á lífsleiđinni fariđ í 5 eđa fleiri tölvusneiđmyndarannsóknir. Ţá hafđi 5% ţeirra fariđ í 22 til 132 rannsóknir. Áćtlađ var ađ 15% hefđi fengiđ geislaálag yfir 100 mSv, en til samanburđar má nefna ađ ţađ samsvarar 5 ára hámarki sem starfsmenn sem vinna viđ jónandi geislun mega verđa fyrir. Ţá var einnig áćtlađ ađ um 4% sjúklinga vćri međ uppsafnađ geislaálag á bilinu 250 til 1350 mSv. Í greininni er síđan fjallađ nánar um aukna krabbameinsáhćttu vegna endurtekinna tölvusneiđmyndarannsókna.
Á vefsetrinu er einnig sagt frá nýlegri yfirlýsingu frá Geislavarnastofnun Bandaríkjana (National Council on Radiation Proctection and Measurements, NCRP) vegna vćntanlegrar skýrslu nr. 160, ţar sem fjallađ er um geislaálag almennings vegna jónandi geislunar í Bandaríkjunum áriđ 2006 og ţađ boriđ saman viđ sambćrilegar niđurstöđur frá fyrri hluta níunda áratugar síđustu aldar. Í skýrslunni kemur fram ađ bandaríkjamenn verđa í dag ađ međaltali fyrir sjö sinnum meiri geislun og er aukningin fyrst og fremst vegna aukningar í lćknisfrćđilegri notkun og ţá fyrst og fremst vegna tölvusneiđmyndarannsókna og kjarnlćknisfrćđirannsókna (Nuclear Medicine).
Ţá birtast á vefsíđunni viđbrögđ ACR (samtök röntgenlćkna), AAPM (samtök eđlisfrćđinga sem starfa í lćknisfrćđi) og HPS (samtök heilsueđlisfrćđinga), ţar sem sérstaklega er fjallađ er um ástćđur ţessarar hćkkunar og ţann ávinning sem framfarir í lćknisfrćđilegri myndgreiningu hafa haft í för međ sér.
Á vefsetrinu er einnig fjöldi annarra áhugaverđa frétta og leiđbeininga.
Meginsíđa vefsetursins er hér
Sjá einnig fyrri frétt um vefsetur IAEA um geislavarnir sjúklinga:
GE