Fréttir

Notkun sneiðmynda - gæta þarf hófs!

5.5.2009

Alþjóða kjarnorkumálastofnunin (IAEA) sendi frá sér fréttatilkynningu í síðustu viku (29.4) þar sem varað var við ofnotkun sneiðmyndatækni (CT). Sneiðmyndir hafa mikið greiningargildi fyrir lækna og gera auðveldara að finna og greina ýmis mein, en þeim getur einnig fylgt töluverð geislun á sjúklinga. Það verður því að gæta hófs í notkun þeirra eins og bent var á í frétt Geislavarna fyrir tveimur vikum.

Fréttatilkynning IAEA ber fyrirsögnina Protection of Patients – Safety Specialists Warn Against Overuse of New Imaging Devices. Í textanum er sagt að miklar framfarir hafi orðið í myndgreiningarbúnaði og það hafi gert mögulegt að finna hulin mein og gera nákvæmari greiningar. Hins vegar geti töluverð geislun fylgt þessum rannsóknum og því verði að draga sem mest úr ónauðsynlegri geislun vegna þessarar notkunar, t.d. takmarka endurtekningar og tryggja að sérhver rannsókn sé læknisfræðilega réttlætanleg.

IAEA hefur beitt sér með ýmsum hætti fyrir bættum geislavörnum sjúklinga (sjá t.d. tilvísanir í frétt fyrir 2 vikum), eitt sem er til skoðunar er að byggja upp kerfi þannig að upplýsingar um geislun sem sjúklingar verða fyrir fylgi þeim.  Alþjóðastofnanir (WHO, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin; UNSCEAR, Vísindanefnd Sameinuðu þjóðanna um áhrif jónandi geislunar og ICRP, Alþjóða geislavarnaráðið) hafa einnig sameinast í átaki til að bæta geislavarnir sjúklinga.

IAEA beitir sér jafnframt fyrir tæknilegri samvinnu við aðildarríki til að greina hvaða þættir það eru sem helst leggja til ónauðsynlega geislun og hvernig unnt er að hafa hemil á þeim.

Vonandi mun allt þetta starf skila sér í því að unnt verði að nýta sem best þá miklu kosti sem myndgreiningartæknin býður upp á, með sem minnstri áhættu fyrir sjúklinga.

Meiri upplýsingar um starf IAEA til greislavarnar sjúklingum má fá á fréttasíðunni Radiation Protection of Patients, þar má lesa, sjá og heyra fregnir af starfi stofnunarinnar á þessu sviði.

Til starfs IAEA vegna geislavarna sjúklinga hefur verið vísað í fréttum Geislavarna fyrir 2 vikum, þann 21.4.2009, og áður þann 16.2.2009.