Fréttir
Fundur v. samnings um örugga međferđ geislavirks úrgangs
Samningurinn um örugga međferđ notađs eldsneytis og um örugga međferđ geislavirks úrgangs (e. Joint Convention on the Safety of Spent Fuel Management and on the Safety of Radioactive Waste Management) var stađfestur af ríkisstjórn Íslands síđla árs 2005. Markmiđ samningsins er ţríţćtt:
- Ađ ná og viđhalda öryggi í allri međferđ á notuđu brennsluefni kjarnakljúfa og geislavirkum úrgangi um allan heim.
- Ađ tryggja fullnćgjandi varnir gegn hćttu sem frá slíkum efnum getur stafađ.
- Ađ koma í veg fyrir og takmarka afleiđingar slysa vegna slíkra efna.
Samningurinn tekur ekki ađeins til úrgangs frá kjarniđnađi heldur til úrgangs vegna allrar notkunar geislavirkra efna, t.d. í lćknisfrćđi og iđnađi. Öll ríki hafa ţví hag af ţví ađ samningnum sé framfylgt og hefur Alţjóđa kjarnorkumálastofnunin (IAEA) lagt ţunga áherslu á ađ sem flest ríki eigi ađild ađ samningnum, nú eru ţau 49.
Samkvćmt ákvćđum samningsins á ađ halda fund ađildarríkja hans eigi sjaldnar en á ţriggja ára fresti og ţar á hvert ríki ađ leggja fram skýrslu um hvernig kröfur samningsins hafi veriđ uppfylltar. Sjö mánuđum fyrir hvern fund ţurfa ađildarríki ađ leggja fram skýrslu um hvernig ţau hafi stađiđ viđ ákvćđi samningsins og eru skýrslurnar um leiđ gerđar ađgengilegar öđrum ađildarríkum. Önnur ríki hafa 4 mánuđi til ađ rýna skýrsluna og leggja fram skriflegar fyrirspurnir. Ţeim ber síđan ađ svara skriflega eigi síđar en mánuđi fyrir upphaf fundar.
Á síđasta ári, ţegar undirbúningur fundarins hófst, ţá vísađi IAEA í skýrslu Íslands frá 2006 sem fyrirmynd fyrir ţau ríki sem ekki nýta kjarnorku. Međ ţessu vildi stofnunin árétta gildi samningsins fyrir öll ađildarríki, óháđ ţví hversu mikil eđa lítil notkun ţeirra vćri á kjarnorku og geislavirkum efnum (sjá frétt Geislavarna ríkisins frá 15. 9. 2008).
Á fundinum var einnig fjallađ um mörg mál sem tengjast ekki notkun kjarnorku og sem skipta máli fyrir Ísland, t.d. skimun eftir geislavirkum efnum á landamćrum og nauđsyn ţess ađ verjast ţví ađ geislavirk efni fari međ brotajárni í málmbrćđslu (sem getur leitt af sér mjög háar skađabótakröfur). Stefna Geislavarna ríkisins hefur veriđ ađ geislavirkum efnum sé skilađ til upprunalands og á fundinum var rćtt viđ fulltrúa grannríkja um samstarf í ţeim tilvikum ţar sem erfiđleikar á slíkum skilum koma upp.