Fréttir

Eftirlit með tilraunasprengingum N-Kóreu

12.6.2009

Norður-Kóreumenn sprengdu kjarnorkusprengju 25. maí sl. og nú eru uppi vangaveltur um hvort þeir undirbúi aðra sprengingu. Á undanförnum árum hefur verið byggt upp öflugt eftirlitskerfi til að sannreyna að ekki sé brotið á alþjóðasáttmála um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn (CTBT). Þetta kerfi gegnir lykilhlutverki í greiningu á sprengingum N-Kóreumanna og hafa Geislavarnir starfrækt um árabil eina af stöðvum kerfisins.

Eins og kunnugt er sprengdu Norður-Kóreumenn kjarnorkusprengju í tilraunaskyni 25. maí sl. Eftirlitskerfi Comprehensive Nuclear-Test-Ban Treaty Organization (CTBTO) hefur verið notað til að staðsetja sprenginguna og meta afl hennar. Gögnum hefur síðan verið safnað áfram í kerfinu til frekari greiningar á sprengingunni, eins og gert verður ef brotið verður á alþjóðasáttmála um allherjarbann við tilraunum með kjarnavopn eftir að hann gengur í gildi. Níu ríki eiga eftir að fullgilda sáttmálann til að svo geti orðið.

Jarðskjálftastöðvar eftirlitskerfisins námu sprenginguna samstundis, staðsettu hana nærri staðnum sem notaður var við sprenginguna í október 2006 og tímasettu kl. 00:54:43 UTC. Sama morgun kl. 02:24 UTC höfðu aðildarríki alþjóðasáttmálns fengið tilkynningu um atburðinn úr sjálfvirku gagnamiðlunarkerfi CTBTO; nokkrum klukkustundum áður en N-Kóreumenn tilkynntu um hann á alþjóðavísu. Jarðskjálftinn sem sprengingin olli er nokkru stærri en árið 2006, eða 4,52 á Richter. Gögn frá 23 jarðskjálftastöðvum voru notuð við frumgreiningu, allt frá Ussuriysk í Rússlandi til Texas í BNA og verður gögnum frá 16 skjálftastöðvum til viðbótar bætt við til frekari úrvinnslu. Gögnum hefur verið safnað frá loftsöfnurum eftirlitskerfisins til frekari greiningar, en geislavirk efni frá sprengingunni tekur nokkurn tíma að berast þeim, allt eftir veðri og vindum. Eftir sprenginguna árið 2006 mældist t.d. eðallofttegundin Xe-133 í Yellowknife í Kanada, í 7.500 km. fjarlægð tveimur vikum eftir sprenginguna og var með aðstoð veðurgagna hægt að rekja efnið til sprengjustaðar. Geislavarnir ríkisins hafa um árabil rekið eina af loftsöfnunarstöðvum eftirlitskerfisins.

Frekari upplýsingar, sem uppfærðar eru reglulega, má finna á heimasíðu CTBTO, http://pws.ctbto.org/. Sjá einnig fréttir á vef Geislavarna ríkisins í október 2005, október 2006 og október 2007.