Fréttir
Umrćđa um húđkrabbamein vegna ljósabekkja
Tíđni húđkrabbameina hefur aukist mjög verulega á undanförnum árum, sérstaklega hjá ungum konum 15 – 34 ára og meira á Íslandi en annarstađar á Norđurlöndum. Vitađ er ađ útfjólublá geislun frá sól getur valdiđ húđkrabbameini og sterkur grunur er um ađ notkun ljósabekkja auki hćttu á húđkrabbameini, sérstaklega ţegar ungt fólk á í hlut.
Reglur á Íslandi um ljósabekki eru sambćrilegar viđ reglur annarra Norđurlanda.
Samstarfshópur um útfjólubláa geislun sem Geislavarnir áttu frumkvćđi ađ á árinu 2003 og í eru fulltrúar Krabbameinsfélags, Landlćknis, Lýđheilsustöđvar og Félags húđlćkna, auk fulltrúa Geislavarna, hefur haldiđ uppi margţćttri frćđslu um skađsemi ljósabekkja undanfarin ár, sbr. árlegt átak „Hćttan er ljós“, ţar sem m.a. birtast margar auglýsingar í fjölmiđlum til ađ vekja athygli á hćttunni. Frá árinu 2004 hefur notkun ljósabekkja jafnframt árlega veriđ könnuđ af Gallup sem hluti af átakinu.
Notkun ljósabekkja á Íslandi hefur minnkađ verulega undanfarin ár, en ţví miđur minnst hjá yngstu aldurshópunum. Ţannig höfđu 30% Íslendinga á aldrinum 16-75 ára notađ ljósabekki á árinu 2003 en tćplega 20% á árinu 2008. Ef horft er sérstaklega til aldurshópsins 12-23 ára höfđu tćplega 50% notađ ljósabekki á árinu 2003 en tćplega 40% á árinu 2008.
Vegna ţess ađ frćđsla og vitneskja um mögulega skađsemi virđist ekki nćgja til ţess ađ ungt fólk dragi úr eđa hćtti notkun ljósabekkja hefur umrćđa um aldursmörk í ljósabekki aukist. Ađ mörgu ţarf ađ huga í ţví samhengi, svo sem löggjöf á ţessu sviđi og framkvćmd hennar.
Forstjórar norrćnu geislavarnastofnananna ákváđu á fundi sínum í júní sl. ađ vinna sameiginlega ađ innleiđingu á 18 ára aldursmörkum í ljósabekki á Norđurlöndum.
Sjá einnig frétt sem birt var síđar sama dag (29.7) á vef Geislavarna ríkisins