Fréttir

Ljósabekkir flokkaðir sem krabbameinsvaldandi

29.7.2009

Fyrr í dag birtu Geislavarnir frétt um að Krabbameinsrannsóknastofnunin (IARC) í Lyon væri sögð hafa flokkað ljósabekki sem krabbameinsvaldandi, í stað „líklega krabbameinsvaldandi“ eins og áður. Þegar fréttin var skrifuð í morgun var ekki hægt að sjá staðfestingu þessa á vef IARC. Fréttatilkynning um breytingu flokkunar hefur nú verið birt á vefnum og er því opinberlega staðfest.

Nánari upplýsingar má fá í fyrri frétt Geislavarna frá því í morgun. Fjölmiðlar höfðu þá sagt frá því að flokkun hefði verið breytt og m.a. vísað í samtöl við sérfræðinga IARC. Staðfestingu þessa var hins vegar ekki að finna á vef stofnunarinnar fyrr en síðdegis (29.7). Greinin sem vísað er til í vísindaritinu The Lancet Oncology varð einnig aðgengileg á Vefnum í dag.

Sjá nánar: