Fréttir

Afhjúpun leyndardóma múmíanna

21.8.2009

Framfarir í læknisfræðilegri myndgreiningu halda áfram að vera örar og segja má að bæði lifendur og orðspor dauðra njóti góðs af. Þó verður að gæta hófs í beitingu tækninnar á okkur lifendur, vega gagn á móti áhættu.

Á undanförnum árum hafa orðið miklar framfarir í myndgreiningartækni í læknisfræði, bæði sneiðmyndatækni (CT) og segulómun (MRI). Nú orðið er hægt að ná gríðarlega fíngerðum myndum með þessari tækni og greina á milli mismunandi vefja. Það er ekki eingöngu sjúklingar sem hafa notið góðs af, tæknin hefur einnig reynst vel við rannsóknir á ýmsum viðkvæmum munum, t.d. múmíum. Með tækninni er hægt að greina kyn, aldur við dauða og jafnvel ráða í sjúkdómssögu og dánarorsök. Tækninni hefur m.a. verið beitt nú til að úrskurða um örlög Ramses II, faraós. Því hefur stundum verið haldið fram að hann hafi þjáðst af gigtarsjúkdóm í hrygg. Greiningin leiddi í ljós að svo var ekki og er það í samræmi við sagnfræðilegar heimildi, sem lýsa honum sem miklum stríðsmanni. Búið er að mynda aðra múmíu með enn öflugri tækni (iCT). Myndirnar með þessari nýju tækni innihalda gríðarlegt magn upplýsinga, svo mikið að það tekur um ár að vinna úr þeim. Þessi tækni getur auðvitað einnig gagnast okkur sem erum á lífi, en þá verður að beita henni hóflega og þannig að víst sé í hvert sinn að gagn sjúklings sé meira en áhættan sem fylgir rannsókninni.

Á þetta hefur verið bent áður á vef Geislavarna, sjá t.d. frétt 5.5.2009 Notkun sneiðmynda - gæta þarf hófs!

Nánari umfjöllun um nýjungar í þessari myndgreiningartækni og hvernig tækninni hefur verið beitt við rannsóknir á múmíum má finna á vef Alþjóða kjarnorkumálastofnuninnar, IAEA: http://www.iaea.org/NewsCenter/News/2009/mummysecrets.html