Fréttir
Aukin áhætta á hjarta- og æðasjúkdómum vegna geislunar?
Árlega er á vegum ráðgjafanefndar ESB um geislavarnir (Artical 31 Group of Experts) haldin ráðstefna þar sem fjallað er um þau mál sem eru efst á baugi á hverjum tíma, s.s. niðurstöður nýlegra rannsókna um geislun og áhættu vegna geislunar sem gæti haft áhrif á stefnu ESB varðandi rannsóknir og/eða lagasetningu á þessu sviði.
Árið 2008 var haldin ráðstefna þar sem fjallað var um þá vitneskju sem safnast hefur saman í gegnum árin og snúa að mögulegri aukinni áhættu á hjarta og æðasjúkdómum vegna geislunar. Í ráðstefnuritinu birtast auk greina um niðurstöður rannsókna og umfjöllunar um þær, samantekt frá ráðgjafarnefndinni þar sem komist er m.a. að þeirri niðurstöðu að taka þurfi tillit til þessarar áhættu þegar um er að ræða mikla geislun á viðkomandi líffæri (> 0,5 Gy). Þetta á helst við um aðstæður í geislameðferð, við slysageislun og jafnvel þegar um ítrekaðar geislanir á hjartasvæði er ræða við tölvusneiðmyndarannsóknir í greiningarskyni.
Ráðgjafarnefndin mælir með frekari rannsóknum á þessu sviði í framtíðinni, en í gangi eru þegar nokkrar rannsóknir sem tengjast þessu í Evrópu (NOTE og CARDIORISK).
Hlekkur á vefsíðu Geislavarnadeildar ESB
Hlekkur á rit nr. RP-158 (950 KB)
Frekari umfjöllun um líffræðileg áhrif jónandi geislunar má finna:
1. Fræðsluefni á vef Geislavarna
2. Rit ICRP nr. 103 (útdráttur á vef ICRP)
(ritið í heild sinni á vef ScienceDirect)
3. Rit UNSCEAR, 2006 Report "Effects of Ionizing radiation"
26. ágúst 2009
GE