Fréttir

Nýtt viðmiðunarrit IAEA með framlagi Geislavarna ríkisins

8.9.2009

Út er komið nýtt rit hjá IAEA sem markar tímamót í geislavistfræði. Í því eru viðmiðunargildi sem gera mögulegt að meta dreifingu geislavirka efna til umhverfis og í því. Beri geislaslys að höndum, þá er mjög mikilvægt að geta metið afleiðingar þess með alþjóðlega viðurkenndum hætti. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin, IAEA, gaf fyrir 15 árum út rit með viðmiðunargildum sem hafa verið notuð til að meta áhrif dreifingar geislavirkra efna.  Nú er komin út ný og mjög stækkuð útgáfa þessa rits.  Starfsmaður Geislavarna ritstýrði einum undirkafla bókarinnar í samvinnu við þrjá aðra.

Árið 1994 lét Alþjóðakjarnorkumálastofnunin, IAEA, taka saman rit með lýsingu á tilfærslu margra geislavirkra efna í náttúrunni, Technical Reports Series No. 364, Handbook of Parameter Values for the Prediction of Radionuclide Transfer in Temperate Environments. Mikilvægi ritsins fólst í því að þar voru töluleg gildi sem gerðu kleift að leggja mat á væntanlega dreifingu geislavirka efna til umhverfis og í því. Ritið hefur verið mikilvæg viðmiðun í þau 15 ár sem liðin eru frá útgáfu þess og hefur oft verið notað sem grunnur mats á dreifingu geislavirkra efna og þeim áhrifum sem hún hefur haft eða kann að hafa.

Ritið tók mið af ýmsum rannsóknaniðurstöðum sem birtar voru allt til ársins 1992 (og þar með fyrstu 6 árin eftir slysið í Tsjernobyl). Á síðari árum hafa bæst við traustari niðurstöður fyrir margar kjarntegundir og fyrir fleiri vistkerfi. Það þótti því vera tímabært að endurskoða efni ritsins.

Endurskoðuð útgáfa ritsins, IAEA-TECDOC-1616, Quantification of Radionuclide Transfer in Terrestrial and Freshwater Environments for Radiological Assessments, er nýkomin út og þykir hún marka tímamót.  Í tilefni útgáfunnar er gefið út sérhefti af vísindaritinu Journal of Environmental Radioactivity, sem er helgað þessu nýja riti.

Starfsmanni Geislavarna, Sigurði Emil Pálssyni, eðlisfræðingi, var boðið að ritstýra undirkafla um geislavistfræði heimskautasvæða, í samvinnu við þrjá aðra.

Hið nýja rit IAEA má nálgast á rafrænu formi (sem PDF-skjal) af vefsetri stofnunarinnar:

http://www-pub.iaea.org/MTCD/publications/PDF/te_1616_web.pdf

Tímaritið Journal of Environmental Radioactivity má nálgast með landsaðgangi Íslendinga að Science Direct: http://www.sciencedirect.com/science/journal/0265931X

Sérheftið sem helgað er nýja ritinu frá IAEA má finna hér