Fréttir

53. ársfundur IAEA

30.9.2009

Alþjóðakjarnorkumálastofnunin, IAEA, hélt 53. ársfund sinn í Vín daganna 14. - 18. september s.l.. Um 1400 fulltrúar aðildarríkja IAEA sóttu ársfundinn en þar voru samþykktar ályktanir um störf stofnunarinnar og framtíðarstefnu á sviði geislavarna, kjarnorkustarfsemi, yfirfærslu kjarnatækni og varnir gegn útbreiðslu kjarnavopna.

Á ársfundinum var staðfest ráðning Yukia Amano frá Japan sem nýs forstjóra IAEA en núverandi forstjóri Mohamed ElBaradei lætur af störfum í árslok 2009. Var honum þakkað einstaklega gott og farsælt starf í þágu stofnunarinnar.

Ísland var meðflytjandi að ályktunum um eflingu öryggisráðstafana til að hindra útbreiðslu kjarnavopna (NPT-samningurinn), aðgerðir til að efla alþjóðlegt samstarf í málum sem varða kjarnöryggi, geislavarnir, flutning geislavirkra efna og meðferð geislavirks úrgangs. Ísland var einnig meðflytjandi að ályktun sem fjallar um auknar aðgerðir til að varna hryðjuverkum sem beinast að kjarniðnaði eða stöðum þar sem geislavirk efni eru notuð.

Í tengslum við ársfundinn voru haldnir ýmsir hliðarfundir svo sem um þróun kjarnöryggis með aukinni hnattvæðingu og reynslu af geymslu á geislavirkum úrgangi í stöðugum berglögum auk sérstaks fundar um framleiðslu og flutninga á geislavirkum samsætum sem notuð eru við greiningu og meðferð sjúkdóma. Einnig var haldin ráðstefna um orkumál og þróun auk árlegs samráðsfundar yfirmanna geislavarna- og kjarnöryggisstofnana aðildarlanda IAEA.

IAEA sinnir vísinda-, tækni- og eftirlitshlutverki með kjarnatækni á breiðum grunni og mótar alþjóðlegar reglur á þessu sviði. Stofnunin fer með alþjóðlega samninga um geislunarmál, m.a. sem varða viðbúnað við geislaslysum og meðferð á geislavirkum úrgangi. Þar sem kjarnorkuver og kjarnorkuúrgangsstöðvar eru í nærliggjandi löndum er mikilvægt að Ísland geti fylgst með að ströngum öryggisreglum sé framfylgt. Þetta kom skýrt fram á endurskoðunarfundi alþjóðlegs samnings um meðferð á kjarnbrennsluefni og geislavirkum úrgangi sumarið 2009.

Viðbúnaðarþátturinn í starfsemi IAEA er mikilvægur ef geislaslys verður. Þá gegnir jónandi geislun mikilvægu hlutverki á Íslandi eins og í öðrum aðildarlöndum IAEA, m.a. við greiningu og meðferð sjúkdóma. Framlag stofnunarinnar til þróunarmála er mikilvægt, en það snýr að því að aðstoða þróunarríki við að nota kjarnatækni til að bæta lífskjör, m.a. með aukinni framleiðni í landbúnaði og baráttu við sjúkdóma. Síðast en ekki síst gegnir stofnunin mikilvægu eftirlitshlutverki við að hefta útbreiðslu kjarnavopna samkvæmt NPT-samningnum.

Nánari upplýsingar um ársfundinn má finna á: http://www.iaea.or.at/About/Policy/GC/GC53

30.september 2009

SMM