Fréttir
Ný skýrsla: Vöktunarmćlingar Geislavarna ríkisins 2008
Í skýrslunni eru teknar saman vöktunarmćlingar Geislavarna ríkisins á geislavirku sesíni (Cs-137) í umhverfinu og í matvćlum áriđ 2008. Sesín-137 var mćlt í eftirfarandi sýnaflokkum:
- Andrúmslofti (svifryki)
- Úrkomu
- Kúamjólk (nýmjólk og mjólkurdufti)
- Lambakjöti
- Sjó
- Ţangi
- Fiski
Niđurstöđur mćlinga benda til ađ litlar breytingar hafi orđiđ á styrk sesíns síđustu árin og ađ a.m.k. sé ekki um marktćka aukningu ađ rćđa. Í andrúmslofti er styrkur sesíns < 3 μBq/m3 og í úrkomu < 1 mBq/l.
Í mjólk mćlist styrkur sesíns ađ jafnađi nálćgt 1 Bq/kg og í mjólkurdufti 6-10 Bq/kg. Styrkur sesíns í lambakjöti er nokkuđ breytilegur, í sýnum frá árinu 2008 mćldist hann 2-18 Bq/kg.
Í sjó mćlist styrkur sesíns 1,3-2,5 Bq/m3. Hćstur styrkur mćlist jafnan í pólsjó fyrir norđan og vestan land. Styrkur Tc-99 (teknetín-99) í sjó er mćldur í samvinnu viđ rannsóknastofnunina Risř í Danmöku og reyndist neđan greiningarmarka. Á árunum 2003 –2008 mćldist hann 0,01 – 0,2 Bq/m3. Sýnataka á sjó er jafnan í höndum Hafrannsóknastofnunar. Í ţangi mćlist styrkur sesíns á bilinu 0,05-0,18 Bq/kg ţurrvigt og í ţorski undir 0,3 Bq/kg ferskvigt.
Styrkur sesíns í íslenskum matvćlum er í öllum tilvikum langt innan alţjóđlegra viđmiđunarmarka í milliríkjaverslun, sem eru 1000 Bq/kg.
Geislamćlar til rauntímavöktunar á gammageislun eru starfrćktir viđ fjórar sjálfvirkar veđurstöđvar Veđurstofu Íslands, ţ.e. á Bolungarvík, Raufarhöfn, í Hornafirđi og í Reykjavík. Styrkur geislunar er almennt lágur, eđa 40-80 nSv/klst.
Kjartan Guđnason og Sigurđur Emil Pálsson geta veitt nánari upplýsingar um ţessa vöktun og niđurstöđur hennar.
________
Geislavarnir ríkisins vilja nú í árslok ţakka ánćgjulegt samstarf á árinu sem er ađ líđa og óska öllum velfarnađar á komandi ári.