Fréttir

Viđbótargeislun á flugfarţega vegna hertra öryggisráđstafana er lítil

18.1.2010

Öryggisráđstafanir á flugvöllum hafa veriđ hertar vegna tilraunar til hryđjuverks í bandarískri flugvél í lok síđasta árs. Á mörgum flugvöllum verđur nú tekin upp skimun farţega međ öflugri myndgreiningartćkni. Eđlilegt er ađ spurningar vakni um ţá geislun sem ţví kann ađ fylgja, enda fylgdi mikil geislun gegnumlýsingartćkni sem notuđ var á fyrri hluta síđustu aldar. Ţessari nýju tćkni fylgir hins vegar mjög lítil geislun. Deilur um kerfin hafa einkum snúist um ţćr myndir sem ţau skila af sér, ýmsum finnst ţćr sýna yfirborđ líkama farţega of vel.

Ţeirri tćkni, sem veriđ er ađ taka í notkun vegna hertra öryggisráđstafana á flugvöllum, er ćtlađ ađ finna allt sem farţegar kunna ađ leyna innan klćđa, jafnvel vökva og efni svipuđ líkamanum ađ samsetningu. Tćknilega er ţetta mun erfiđara en ađ finna fasta hluti eins og t.d. málma.  Til ţessa hefur einkum veriđ beitt tvenns konar tćkni:  Lágorku röntgenskannar („soft x-ray scanners“, „backscatter x-ray scanners“) og skannar sem nýta smáar örbylgjur, međ bylgjulengd minna en 1 mm („terahertz scanners“).  Fyrri tegundin nýtir jónandi geislun, sú síđari ekki.  Eftir skönnunina tekur viđ fullkomin myndgreiningartćkni í báđum tilvikum sem skapar ţrívíddarmynd af yfirborđi líkama farţega og lögun ţeirra hluta sem kunna ađ vera á líkamanum.  Myndin getur orđiđ svipuđ óháđ ţví hvor tćknin er notuđ viđ skimunina og getur ţađ ţví skapađ rugling.

Ţótt lágorku röntgenskannarnir nýti jónandi geislun, ţá er röntgengeislunin međ mjög lága orku og lítiđ afl. Lág orka ţýđir ađ geislinn kemst skammt inn í líkamann og ţađ er einmitt ţađ sem er notađ. Tćknin byggist á ţví ađ nema endurkast geislunarinnar frá yfirborđi líkamans, ekki ţađ sem fer í gegn eins og gert er viđ venjulega röntgenmyndun. Geislaálagiđ sem hlýst af notkun ţessara skanna er mjög lítiđ. Ađ mati Health Protection Agency (HPA) í Bretlandi, felur ein skimun í slíkum skanna í sér mjög litla geislun, um 20 nanósívert (nSv) eđa 0,00002 millisívert (mSv). Geimgeislun vex međ hćđ ţannig ađ ţegar viđ fljúgum fáum viđ á okkur meiri geimgeislun en á jörđu niđri. HPA miđar viđ ađ geimgeislun í tćplega 12 km hćđ (35 ţúsund fetum) sé um 0,005 mSv/klst. Ţá svara ţessi 20 nSv til um 15 sekúndna í flugi. Á Íslandi er náttúruleg geislun um 1 mSv á ári. Ţađ ţyrfti ţví 50 ţúsund skimanir í ţessum tćkjabúnađi til ađ jafna árlega náttúrulega geislun hérlendis.

Ţótt geislunin sé lítil frá ţessum leitartćkjum, ţá hafa ţau vakiđ miklar deilur. Ţađ er einkum vegna ţess ađ ýmsum finnst ađ myndgreiningartćknin sýni ţađ nákvćma mynd af yfirborđi líkama, ađ ţađ sé nánast eins og veriđ sé ađ afklćđa farţegann í myndvinnslunni og ţetta brjóti í bága viđ friđhelgi einkalífsins. Reynt hefur veriđ ađ koma til móts viđ ţessi sjónarmiđ međ ţví ađ setja strangar vinnureglur um notkun ţeirra, til dćmis ađ tveir stjórni hverju tćki, annar eigi samskipti viđ farţegann sem er skimađur og sjái ekki myndina, hinn sé í lokuđum klefa og sjái ekki farţegann. Ekki eru ţó allir sáttir viđ ţetta og munu deilurnar eflaust halda áfram um sinn.

Vefsíđa Health Protection Agency í Bretlandi um líkamsskanna á flugvöllum: http://www.hpa.org.uk/HPA/Topics/Radiation/UnderstandingRadiation/1262704915658/

S.E.P.