Fréttir

Ný handbók IAEA með viðmiðunargildum í geislavistfræði

5.2.2010

Út er komin hjá IAEA ný handbók í geislavistfræði, sem skilgreinir viðmiðunargildi sem notuð eru til að lýsa tilfærslu geislavirkra efna sem berast út í umhverfið. Reikna má með að handbókin verði á komandi árum notuð sem viðmið þegar meta skal áhrif þessa. Einn sérfræðinga Geislavarna ritstýrði ásamt þremur öðrum kafla um geislavistfræði norðurslóða í fylgiriti handbókarinnar.

Alþjóða kjarnorkumálastofnunin, IAEA, gaf í síðasta mánuði út rit með viðmiðunargildum í geislavistfræði, Handbook of Parameter Values for the Prediction of Radionuclide Transfer in Terrestrial and Freshwater Environments, Technical Reports Series No.472. Ritið inniheldur stuðla og gögn til að leggja mat á áhrif losunar geislavirkra efna til umhverfis (á landi og til fljóta og stöðuvatna).  Matið miðast við hversu mikið viðkomandi efni myndi berast um fæðukeðjuna og í fólk.  Ritið nýtist einnig til mats á áhrifum atvika og slysa þar sem geislavirk efni dreifast til umhverfis.  Í ritinu er einnig að finna upplýsingar um hvað ræður tilfærslu mismunandi efna í náttúrunni og hvaða þættir hafi áhrif á tilfærsluhraðann. 

IAEA gaf út svipað rit en einfaldara fyrir 16 árum og hefur verið mikil eftirspurn eftir að það rit væri endurnýjað.  Margar nýjar niðurstöður hafa bæst við á þessum tíma og að auki eru nú tekin sérstaklega vistkerfi sem sleppt var áður, t.d. vistkerfi norðurslóða.  Afrakstur þessarar endurskoðunar er tvö rit:

  1. Handbook of Parameter Values for the Prediction of Radionuclide Transfer in Terrestrial and Freshwater Environments, Technical Reports Series No.  472. 
  2. IAEA-TECDOC-1616, Quantification of Radionuclide Transfer in Terrestrial and Freshwater Environments for Radiological Assessments.

Fyrra ritið er handbók, ætluð sem uppflettirit og það er ritið sem nú var að koma út.  Síðara ritið lýsir nánar þeim grunni sem fyrra ritið byggir á, það er mun ítarlegra og kom út í fyrra.  Einn sérfræðinga Geislavarna ríkisins, Sigurður Emil Pálsson, ritstýrði ásamt þremur öðrum kaflanum um geislavistfræði heimskautasvæða í síðara ritinu.  Því riti var lýst í frétt stofnunarinnar þann 8.9.2009, sjá:  /frettir/nr/402

Reikna má með að nýja handbókin verði á komandi árum notuð sem viðmiðun í úttektum á áhrifum geislavirkra efna sem berast til umhverfis.

Rafrænt eintak nýju handbókarinnar má fá án endurgjalds á vef IAEA:

http://www-pub.iaea.org/MTCD/publications/PubDetails.asp?pubId=8201