Fréttir

Notkun geislunar í lækningum. Upplýsingar fyrir sjúklinga og almenning á vefsetri IAEA

9.2.2010

Nýlega bættist við nýtt efni á vefsetri IAEA um geislavarnir sjúklinga í læknisfræði. Um er að ræða fræðsluefni fyrir sjúklinga og almenning, um notkun jónandi geislunar í lækningum og skiptist efnið í nokkra flokka.

Vefsetrið hefur það hlutverk að vera upplýsingaveita fyrir fagfólk, sjúklinga, almenning og heilbrigðisyfirvöld, vegna notkunar jónandi geislunar í læknisfræðilegum tilgangi, þar sem aðgengilegar eru á einum stað margvíslegar upplýsingar um geislun og geislavarnir sjúklinga.

Nýlega var vefurinn uppfærður með nýjan upplýsingaflokk sem snýr eingöngu að sjúklingum og skiptist efnið í nokkra undirflokka eftir notkunaraðferðum þar sem jónandi geislun er beitt:

X-rays - almennt um notkun röntgengeislunar í læknisfræði
Computed Tomography - um notkun tölvusneiðmyndatækninar
Interventional Procedures - um aðgerðarrannsóknir eins og æðaþræðingar
Nuclear Medicine - um notkun geislavirkra efna til greiningar og lækninga
Radiation Therapy - um geislameðferð
Radiation and Pregnancy - fjallað sérstaklega um áhættu vegna geislunar á fóstur

Fræðsluefnið í hverjum flokki byggist á því að setja fram algengar spurningar (FAQ) og svörin við þeim, ásamt tengingum í ýmiskonar ítarefni.

Þó að efnið sé eingöngu á ensku, er vonast til þess að það nýtist og sé góð viðbót við það fræðsluefni sem þegar er til staðar. Þá er einnig vonast til þess að stofnanir og deildir sem nota jónandi geislun í læknisfræðilegum tilgangi geri þetta efni aðgengilegt fyrir sína sjúklinga, með tengingum og kynningum á sínum vefsetrum.

Meginsíða vefsetursins er hér

 

09. febrúar 2010  GE