Fréttir

Fundi um mat á ógn vegna slysa í kjarnorkukafbátum frestað út af eldgosi

21.4.2010

Eldgosið í Eyjafjallajökli hefur sem kunnugt er haft alvarleg áhrif á flugsamgöngur í Evrópu. Erlendir þátttakendur tilkynntu hver af öðrum að vegna þess að þeir gætu ekki verið vissir um að komast hingað og héðan á áætluðum tíma, þá gætu þeir ekki sótt fundinn.  Það var því ákveðið að festa fundinum fram á haust.

Fundurinn verður hugsanlega haldinn í ágúst og verður auglýstur síðar. Nánari upplýsingar um fundinn má fá í frétt GR í síðustu viku:  Fundur í Reykjavík um mat á ógn vegna slysa í kjarnorkukafbátum (/frettir/nr/430).