Fréttir

Lágur styrkur náttúrulegra geislavirkra efna í gosösku

26.4.2010

Skömmu eftir upphaf gossins í Eyjafjallajökli tóku ađ berast fyrirspurnir til Geislavarna ríkisins frá erlendum systurstofnunum um magn náttúrulegra geislavirkra efna í gosöskunni. Út frá jarđfrćđilegum upplýsingum mátti strax álykta ađ styrkurinn vćri lítill.  Ţetta var síđan stađfest međ mćlingum á öskusýni.  Ţessum niđurstöđum var dreift til erlendra stofnana í síđustu viku, enda er brýnt ađ efla sem fyrst skilning á öskunni og dreifingu hennar.

Geislavirk efni eru ekki bara sköpuđ af mönnum, ţau eru einnig hluti af náttúrulegu umhverfi okkar. Ţau er ađ finna í bergi og jarđvegi, ţađ fer ţó eftir bergtegundum hversu mikill styrkur ţeirra er.  Basalt, eins og er ríkjandi hérlendis, er mjög snautt af geislavirkum efnum, í flestum öđrum bergtegundum er styrkur efnanna meiri, t.d. í graníti.

Í mörgum löndum er fylgst náiđ međ geislavirkni í umhverfinu, ţar á međal í svifryki.  Örfín eldfjallaaska getur borist langar leiđir sem svifryk og ef askan inniheldur tiltölulega mikiđ af náttúrulegum geislavirkum efnum, ţá getur ţađ leitt til mćlanlegrar hćkkunar á geislavirkni í svifryki.  Ţótt ţetta sé ekki heilsufarslegt vandamál, ţá eru ýmsar ástćđur fyrir ţví ađ ríki vilja vita hversu mikiđ magn geislavirkra efna er í öskunni:

  1. Til ađ leggja tölulegt mat á heilsufarsáhćttu og sýna fram á ađ hún sé hverfandi.
  2. Til ađ ţekkja ţessa uppsprettu geislavirkni sem best og geta leiđrétt mćlingar sínar međ tilliti til hennar.  Ţar međ er hćgt ađ fylgjast betur međ öđrum hugsanlegum uppsprettum geislavirkni í umhverfinu (ţetta er mikilvćgt til ađ ná sem mestri nćmni í vöktuninni).
  3. Vísindalegt gildi.  Mćlingar á geislavirkni í svifryki geta veitt ýmsar upplýsingar um losun efna viđ eldgos og hreyfingar svifryks í lofthjúpnum.  Betri ţekking á svifrykinu er einnig nauđsynleg undirstađa betra mats á hugsanlegum áhrifum ţess á flugöryggi.

Viđ upphaf gossins höfđu Geislavarnir ríkisins samband viđ Jarđvísindastofnun Háskólans og fengu mat á hversu mikiđ af náttúrulegum geislavirkum efnum mćtti búast viđ í öskunni út frá ţví hvers konar kviku var ţarna um ađ rćđa.  Stofnunin lét einnig Geislavörnum góđfúslega í té sýni af ösku til mćlinga.  Greining á öskunni stađfesti matiđ, styrkur geislavirkra efna í öskunni er lítill og engu meiri en er ađ finna í venjulegum jarđvegi.  Ţessi niđurstađa var kynnt erlendum samstarfsstofnunum í síđustu viku, einnig var vísađ í niđurstöđur sem Jarđvísindastofnun hefur birt og t.d. upplýsingar um mćlingar á dreifingu kornastćrđar sem voru gerđar af Nýsköpunarmiđstöđ Íslands fyrir Umhverfisstofnun. 

Dreifing vísindalegra upplýsinga um öskuna mćltist vel fyrir hjá erlendum stofnunum og Geislavarnir hafa í kjölfariđ fengiđ ýmsar fyrirspurnir.  Dćmi um rannsókn á ösku frá Íslandi hjá einni stofnun sem hafđi samband viđ Geislavarnir:

http://www.psi.ch/media/the-mass-concentration-of-volcanic-ash-from-iceland-in-the-european-air-space

Vonandi leiđa ţessar rannsóknir til aukins skilnings á öskunni og dreifingu hennar, t.d. ţannig ađ verđi unnt í framtíđinni ađ hafa markvissari öryggisviđbrögđ vegna flugsamgangna komi til eldgoss.