Fréttir

Alþjóðlegt áttak til þess að fækka ónauðsynlegum myndgreiningarrannsóknum

5.5.2010

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hleypti af stokkunum árið 2008, átaki sem snýr að geislavörnum vegna notkunar jónandi geislunar i læknisfræðilegri myndgreiningu, með það að markmiði að draga úr fjölda ónauðsynlegra rannsókna

Í byrjun mars s.l. var haldinn fundur á vegum WHO í Genf, þar sem samankomnir voru fulltrúar alþjóðasamtaka sérfræðinga sem starfa innan myndgreiningarinnar, s.s. röntgenlækna, geislafræðinga, geislaeðlisfræðinga ofl., ásamt fulltrúum frá Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni (IAEA) og Evrópusambandinu.

Samþykkt var á fundinum að vinna að þróun og innleiðingu á leiðbeiningum um tilvísanir fyrir myndgreiningarrannsóknir (e. referral guidelines), ásamt því að fylgjast með því hvernig slíkar leiðbeiningar verða notaðar.

Markmiðið með leiðbeiningunum er að stuðla að fækkun ónauðsynlegra rannsókna og draga þannig úr geislaálagi sjúklinga.


Ítarlegri upplýsingar um niðurstöður fundarins - hér

Fréttatilkynning á vefsetri ESB

Fréttatilkynnig á vefsetri WHO


GE

5.5.2010