Fréttir
Árangur í afvopnunarmálum
Þó ekki sé fyrirséð að Ísland verði nokkurntíma kjarnorkuríki hvíla þó þær skuldbindingar á okkur að við gerum grein fyrir þeim kjarnkleyfu efnum og þeim tækjum og tólum sem tiltekin eru í ýmsum viðbótarbókunum við gildandi afvopnunarsamninga. Þannig er Íslandi skylt að gera IAEA (Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni) grein fyrir inn- og útflutningi á öllum kjarnkleyfum efnum (t.d., plútoni, úrani og þóríni), svo og ýmsum tækjabúnaði sem nota má til kjarnorkuiðnaðar. Þar má m.a. nefna grafít til einangrunar í málmbræðslu, kvörðunarlindir í iðnaði og í háskólum, og hlífðarskildi um geislagjafa úr sneyddu úrani í lækningartækjum.
Á ráðstefnunni hefur komið fram mikill stuðningur við alþjóðasáttmálann um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn (Comprehensive Nuclear-Test-Ban Treaty, CTBT) en gildistaka hans er einn mikilvægasti áfangi samtímans í afvopnunar- og friðarmálum. Fjölmörg ríki hafa lýst stuðningi við sáttmálann og hvatt önnur til að staðfesta hann án tafar, en þau ríki sem staðfesta hann skuldbinda sig til að sprengja aldrei framar kjarnorkusprengju. Til að sannreyna að banninu sé framfylgt er í smíðum hnattrænt eftirlitskerfi 321 mælistöðvar auk 16 rannsóknastofa. Geislavarnir ríkisins starfrækja eina þessara mælistöðva, en hún nemur gammageislandi agnir í andrúmslofti. Eindreginn stuðningur við sáttmálann kom einnig fram á fundi Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu 28. apríl sl. og hafa núverandi stjórnvöld í Bandaríkjunum lýst yfir fyrirætlunum um að staðfesta hann.
8. apríl sl. undirrituðu Dmitri Medvedev Rússlandsforseti og Barack Obama Bandaríkjaforseti nýjan START samning sem kveður á um umtalsverða fækkun kjarnorkuvopna Bandaríkjanna og Rússlands, en START 1 samningurinn rann út í desember 2009.
Heimasíða NPT ráðstefnunnar.
Umfjöllun um nýja START samninginn á Wikipedia.
11.05.2010
KG