Fréttir
Starfsmenn GR í námsferð til Þýskalands
Sumarskólinn, sem samsvarar einni önn af háskólanámi stóð yfir í tvær þéttskipaðar vikur. Hann var skipulagður og haldinn í boði Helmholtz Zenter München. Meðal kennara voru nokkrir af fremstu vísindamönnum á sviði geislavarna í Evrópu.
Um 40 nemendur tókur þátt frá mörgum löndum: Þýskalandi, Austurríki, Ítalíu, Króatíu, Slóveníu, Tékklandi, Ungverjalandi, Portúgal, Englandi, Belgíu, Tyrklandi, Armeníu og Íslandi.
Geislavarnir ríkisins taka stöðugt þátt í alþjóðlegu rannsóknarsamstarfi af ýmsum toga, sérstaklega við stofnanir á Norðurlöndunum. Á viðbúnaðarsviði hefur stofnunin talsvert samstarf við Alþjóðakjarnorkumálastofnunina, IAEA og við Bandaríkin.
Þátttaka í þessu námsskeiði styrkir tengsl stofnunarinnar við hinar Evrópuþjóðirnar auk þess að bæta faglega hæfni starfsmannanna.

Myndin sýnir glaðbeitta nemendur sumarskólans fyrir utan Physikzentrum skólann í Bad Honnef í Þýskalandi. Fyrir miðju er einn skipuleggjendanna, Prófessor Herwig Paretzke.
28. maí 2010
Óskar Halldórsson Holm