Fréttir
Hefur orđiđ breyting á ljósabekkjanotkun grunnskólanema?
Capacent-Gallup hefur nýlokiđ árlegri könnun međal ungmenna ţar sem spurt var hvort viđkomandi hafi nýlega notađ ljósabekk. Könnunin náđi til 2773 Íslendinga á aldrinum 12-23 ára. Umrćddar kannanir hafa á undanförnum árum sýnt litlar breytingar á notkun grunnskólanema á ljósabekkjum (12-15 ára) en nú hefur ţeim fćkkađ úr 20% í 10% svarenda sem segjast hafa notađ bekki einu sinni eđa oftar á síđustu tólf mánuđum, sjá međfylgjandi mynd:
Ţegar rýnt er í tölur Capacent-Gallup kemur í ljós ađ fćkkun notenda er mest í hópi ţeirra sem segjast hafa notađ ljósabekk einu sinni eđa tvisvar en hinsvegar er engin fćkkun í hópi ţeirra sem segjast hafa fariđ í bekki mánađarlega eđa oftar, samanber nćstu mynd:
Sú ţróun sem kemur fram á međfylgjandi myndum gćti tengst nýlegri flokkun Alţjóđakrabbameinsstofnunarinnar, IARC á ljósabekkjum sem krabbameinsvaldandi og umrćđu um fyrirhugađa lagasetningu sem banna mun notkun ungmenna yngri en 18 ára á ljósabekkjum. Hugsanlega hefur ţeim nú ţegar fćkkađ sem byrja ađ nota ljósabekki mjög ungir.
Samstarfshópur um varnir gegn útfjólublárri geislun var stofnađur í byrjun árs 2004. Í hópnum eru fulltrúar frá Geislavörnum ríkisins, Landlćknisembćttinu, Félagi íslenskra húđlćkna, Lýđheilsustöđ og Krabbameinsfélaginu. Hópurinn hefur á hverju ári stađiđ fyrir átakinu Hćttan er ljós sem beint er gegn ljósabekkjanotkun fermingarbarna. Fyrir hönd hópsins hefur Capacent-Gallup fylgst međ ljósabekkjanotkun á Íslandi međ könnunum á hverju vori.
Sjá einnig eldri fréttir um ljósabekkjanotkun:
Frétt 2010 um notkun 16-75 ára: /frettir/nr/437
Frétt 2009 um flokkun IARC /frettir/nr/399
Frétt 2009 um notkun grunnskólanema: /frettir/nr/393
ŢS