Fréttir

Venjuleg farsímanotkun eykur ekki líkur á heilaćxlum

22.6.2010

Nýlega voru birtar niđurstöđur úr mjög stórri alţjóđlegri rannsókn á notkun farsíma. Samkvćmt henni eykur venjuleg farsímanotkun ekki líkur á myndun heilaćxla. Í rannsókninni kom á óvart ađ ţeir sem alls ekki töluđu í farsíma virtust örlítiđ líklegri til ađ fá heilaćxli.

Alţjóđakrabbameinsstofnunin, IARC birti 17. maí 2010 fréttatilkynningu um niđurstöđur úr Interphone, alţjóđlegri rannsókn í 13 löndum á farsímanotkun. Athugađ var hvort rúmlega 5000 einstaklingar sem fengiđ höfđu heilaćxli, hefđu notađ farsíma meira en ađrir.

         Niđurstöđur komu á óvart ađ ţví leyti ađ svo virtist sem venjuleg notkun farsíma dragi lítillega úr líkum á myndun ćxla. Ţetta er ţó ekki taliđ vera vegna ţess ađ notkun farsíma sé heilsusamleg heldur vegna galla í rannsókninni sem ekki hefur tekist ađ skýra.

            Ţeir sem gáfu upp mesta notkun farsíma virtust vera í lítillega aukinni hćttu á ađ fá heilaćxli. Sú mikla notkun sem um rćđir ţykir hinsvegar vera ótrúleg.

            Heildarniđurstađan er ađ ekki hafi komiđ ljós ađ farsímanotkun auki hćttu á heilaćxlum (tróđćxlum og himnućxlum, enska: glioma, meningioma). Vísbendingar voru um ađ mesta notkunin yki hćttu á tróđćxlum (glioma) en óvíst er um orsakasamhengi ţar á milli vegna óvissuţátta og skekkja í rannsókninni. Rannsaka ţarf betur áhrif mikillar langtímanotkunar farsíma.

 

 

Fréttatilkynning IARC:

http://www.iarc.fr/en/media-centre/pr/2010/pdfs/pr200_E.pdf

 

Niđurstöđur rannsóknar:

http://www.oxfordjournals.org/our_journals/ije/press_releases/freepdf/dyq079.pdf

 

Eldri frétt frá 2005 um Interphone rannsóknina og góđkynja ćxli í heyrnartaug (acoustic neuroma) /frettir/nr/197