Fréttir

Segulsvið á Íslandi svipað og í Svíþjóð

27.8.2010

Geislavarnir ríkisins og Brunamálastofnun hafa nýlega lokið rannsókn á segulsviði í rúmlega 130 íbúðum. Niðurstöður benda til að segulsviðið í íbúðum á Íslandi sé svipað og í Svíþjóð en frágangur raflagna á Íslandi og í Svíþjóð er sambærilegur. Niðurstöðurnar gefa ekki tilefni til umfangsmeiri rannsókna á segulsviði í íbúðarhúsnæði á Íslandi. Meðaltal segulsviðs mældist um 0,1 µT en algengustu gildi eru um 0,05 µT. Segulsvið yfir 0,4 µT er sjaldgæft og stafar oftast af svokölluðum flökkustraumum. Með einföldum aðgerðum má oftast draga úr þessum straumum.

Segulsvið með 50 Hz tíðni myndast þegar straumur rennur um raftæki og rafmagnsleiðslur á heimilum eða í rafdreifikerfinu. Alþjóðakrabbameinsstofnunin, IARC, flokkaði segulsvið með 50 Hz tíðni sem hugsanlegan orsakavald hvítblæðis í börnum árið 2002. Niðurstöður rannsókna síðan þá hafa ekki leitt til breytinga á þeirri flokkun.

Á vegum Geislavarna ríkisins og Brunamálastofnunar hefur verið mælt segulsvið í rúmlega 130 íbúðum, aðallega í Reykjavík og nálægum sveitarfélögum en einnig í dreifbýli. Niðurstöður hafa verið teknar saman í skýrslu sem er að finna á heimasíðum stofnananna www.gr.is og www.brunamal.is.

Meðaltal segulsviðs í íbúðum í þéttbýli á Íslandi reyndist vera svipað og í Svíþjóð eða um 0,1 µT ( eining fyrir segulsvið er tesla, T ). Dæmigerð gildi mældust helmingi lægri eða um 0,05 µT.

Þétt við rafmagnstæki í notkun getur segulsvið mælst 2 – 3 µT en það er nær alltaf nánast horfið í eins metra fjarlægð frá viðkomandi tæki.  

Í rannsókninni fundust 13 íbúðir þar sem segulsvið mældist yfir 0,4 µT. Í flestum tilfellum var aðeins um eitt herbergi að ræða og segulsviðið að meðaltali lægra en 0,3 – 0,4 µT. Aukið segulsvið stafar oftast  af svokölluðum flökkustraumum sem venjulega er hægt að minnka með einföldum aðgerðum.

Niðurstöður benda til að segulsvið á íslenskum heimilum sé svipað og í Svíþjóð. Svíþjóð er höfð til samanburðar vegna þess að frágangur raflagna á Íslandi og í Svíþjóð er sambærilegur.

Með hliðsjón af niðurstöðum rannsóknarinnar telja Geislavarnir ríkisins að ekki séu, að svo stöddu, veigamikil rök fyrir umfangsmeiri rannsóknum á styrk segulsviðs í íbúðarhúsnæði á Íslandi.

Þá telur Brunamálastofnun ekki þörf á að setja ítarlegri reglur um hönnun og setningu raflagna í byggingum hér á landi með það að markmiði að takmarka segulsvið enda þegar að finna í viðmiðunarreglum stofnunarinnar ákvæði þar að lútandi.

 

Skýrsla um rannsóknina