Fréttir
29. ágúst alþjóðlegur dagur gegn tilraunum með kjarnorkuvopn.
Dagsetningin er ekki tilviljun en segja má að þennan dag árið 1949 hafi kjarnorkuvopnakapphlaup stórveldanna tveggja hafist fyrir alvöru, en þá sprengdu Sovétmenn fyrstu kjarnorkusprengju sína á Semipalatinsk tilraunasvæðinu í Kazakstan. Það var síðan 29. ágúst árið 1991 að svæðinu var endanlega lokað eftir yfir 450 tilraunasprengingar.
Bandaríkjamenn höfðu sprengt sína fyrstu kjarnorkusprengju árið 1945 en samtals hafa verið gerðar vel yfir 2000 tilraunasprengingar í heiminum. Síðast gerðu N-Kóreumenn slíkar tilraunir árin 2006 og 2009.
Helsta driffjöður alþjóðasamfélagsins gegn kjarnorkutilraunum er Comprehensive Nuclear-Test-Ban Treaty Organisation (CTBTO) en sú stofnun hefur umsjón með alþjóðasáttmála um allsherjarbann við tilraunum með kjarnorkuvopn. Liður í starfi þeirrar stofnunar er uppbygging og rekstur hnattræns eftirlitskerfis sem fylgjast á með að ekki sé brotið á sáttmálanum. Geislavarnir ríkisins annast rekstur einnar þessara mælistöðva eins og komið hefur fram áður í fréttum frá Geislavörnum.
Frekari fróðleik má t.d. nálgast á kynningarsíðum CTBTO og Sameinuðu Þjóðanna.
30.08.2010
KG