Fréttir

Eldur í rússneskum kjarnorkukafbáti - engin geislavá

29.12.2011

Fréttir hafa borist í dag af eldi í rússneskum kjarnorkukafbáti, þar sem hann er í slipp vegna viðhalds, í Murmansk í norðurhluta Rússlands.  Skv. fregnum hafa engin geislavirk efni sloppið til umhverfis og ekki er ástæða til að ætla að svo verði.  Geislavarnir ríkisins fylgjast með þessu máli í samvinnu við systurstofnanir á Norðurlöndum.

Samkvæmt fréttum, þá var slökkt á kjarnakljúf bátsins og ennfremur voru engin kjarnorkuvopn í honum, enda vart við öðru að búast á meðan báturinn er í slipp. Geislunarmælistöðvar sem Geislavarnir ríkisins hafa aðgang að sýna enga hækkun.  Það er því hvorki ástæða til að ætla að geislavirk efni hafi borist til umhverfis í tengslum við þetta slys né að þau eigi eftir að gera það.  Unnt verður að staðfesta síðar með mælingum á svifryki að geislavirk efni hafi ekki borist til umhverfis í umtalsverðu magni.

Geislavarnir munu halda áfram að fylgjast með þessu slysi í samvinnu við norrænar geislavarnastofnanir, en frekari fregna er ekki að vænta af slysinu af hálfu stofnunarinnar.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Emil Pálsson, sep@gr.is