Fréttir

Ný skýrsla: Vöktunarmćlingar Geislavarna ríkisins 2010

23.1.2012

Geislavarnir ríkisins hafa birt skýrslu ţar sem kynntar eru niđurstöđur mćlinga stofnunarinnar á styrk geislavirks sesíns í andrúmslofti, úrkomu, mjólk, lambakjöti, sjó, fiski og ţangi á árinu 2010. Styrkur efnisins er í öllum tilvikum langt neđan ţeirra marka sem miđađ er viđ í milliríkjaviđskiptum međ matvćli. Skýrsluna "Vöktunarmćlingar Geislavarna ríkisins 2010, GR 11:04" má nálgast hér á PDF formi.

Í skýrslunni eru teknar saman vöktunarmćlingar Geislavarna ríkisins á geislavirku sesíni (Cs-137) í umhverfinu og í matvćlum áriđ 2010. Sesín-137 var mćlt í eftirfarandi sýnaflokkum:

  • Andrúmslofti (svifryki)
  • Úrkomu
  • Kúamjólk (nýmjólk og mjólkurdufti)
  • Lambakjöti
  • Sjó
  • Ţangi
  • Fiski


Niđurstöđur mćlinga benda til ađ litlar breytingar hafi orđiđ á styrk sesíns síđustu árin og ađ a.m.k. sé ekki um marktćka aukningu ađ rćđa. Magn geislavirkra efna er mćlt međ einingunni Bq (Becquerel), 1 Bq = 1000 mBq = 1 000 000 µBq.

Í andrúmslofti er styrkur sesíns minni en 3 μBq/m3 og í úrkomu minni en 1 mBq/lítra.

Í mjólk mćlist styrkur sesíns ađ jafnađi um 0,5 - 1 Bq/kg og í mjólkurdufti kringum 10 Bq/kg. Styrkur sesíns í lambakjöti er jafnan breytilegur, í sýnum frá árinu 2010 mćldist hann 2-31 Bq/kg.

Í sjó mćlist styrkur sesíns 1,3-2,1 Bq/m-3. Hćstur styrkur mćlist jafnan í pólsjó fyrir norđan og vestan land. Sýnataka á sjó er í höndum Hafrannsóknastofnunar. Í ţangi er styrkur sesíns frá ţví ađ vera neđan greiningarmarka og allt ađ 0,21 Bq/kg ţurrvigt og í fiski allt ađ 0,13 Bq/kg ferskvigt.

Eins og fram kemur í skýrslunni er styrkur sesíns í íslenskum matvćlum í öllum tilvikum langt innan alţjóđlegra viđmiđunarmarka í milliríkjaverslun, sem eru 1000 Bq/kg.

Geislamćlar til rauntímavöktunar á gammageislun eru viđ fjórar sjálfvirkar veđurstöđvar Veđurstofu Íslands, ţ.e. á Bolungarvík, Raufarhöfn, í Hornafirđi og í Reykjavík. Styrkur geislunar er almennt lágur, eđa 40-80 nSv/klst. sem er mun lćgra en algengt er í nágrannalöndunum. Fylgjast má međ mćligildum frá ţessum geislamćlum međ ţví ađ smella á tengilinn Gammastöđvar á ţessari síđu.

Sigurđur Emil Pálsson veitir nánari upplýsingar um ţessa vöktun og niđurstöđur hennar.

23.01.2012
KG